Kynningardagar og handverkssýning í Ráðhúsinu
31.05.2010
Upplestur á frétt 
Félagsmiðstöðvarnar í Miðborg og Hlíðum hafa verið með árlegar lista- og handverkssýningar, en í ár var ákveðið að allar fjórar félagsmiðstöðvarnar skyldu slá saman í eina stóra og veglega sýningu. Markmiðið var fyrst og fremst að vekja athygli á félagsmiðstöðvunum og kynna það fjölbreytta félagsstarf sem er þar í boði, ódýrum námskeiðum, ódýrum og góðum mat og fleiru. Eins og heiti kynningardaganna gefur til kynna er félagsstarfið á félagsmiðstöðvunum fyrir fólk á öllum aldri, jafnt konur sem karla. Námskeiðsframboðið er breitt og vonast er til þess að laða sem flesta að til að koma og prófa.
Á handsverkssýningunni var sýnishorn af því sem unnið er á námskeiðunum sem eru í boði. Mörg verkanna eiga sér langa og skemmtilega sögu. Sem dæmi má nefna “brúðarkjólarúmteppið” eftir Solveigu Theodorsdóttur. Hún rak á árum áður brúðarkjólaleigu og þegar hún fór á bútasaumsnámskeið hjá einni af félagsmiðstöðvunum kom upp sú hugmynd að nýta gömlu kjólana í rúmteppi. Úr varð rómantískt og fallegt bútasaumsteppi sem er sett saman úr efnisbútum úr brúðarkjólunum, en hún bætti einnig við persónulegum efnisbútum úr gömlum blúndum, koddaverum og fleiru.
Einnig var til sýnis biblía frá árinu 1841 sem var orðin sundurslitin af notkun, spjaldlaus og í hana vantaði nokkrar síður. Jóhanna Pétursdóttir, sem erfði biblíuna eftir langafa sinn, Ólaf Þórðarson, sem bjó í torfbæ á Sumarliðastað í Holtum, ákvað að gera við hana á bókbandsnámskeiði. Séra Ragnar Fjalar í Viðey útvegaði Jóhönnu blaðsíðurnar sem vantaði og með góðri leiðsögn tók hún bókina í sundur, þvoði hverja blaðsíðu fyrir sig, gerði við og snyrti, og batt svo saman í kálfskinn. Forsíðu kápunnar prýðir ísaumuð mynd eftir Jóhönnu, en þar ber að líta Móses á Sínaí fjalli.
Saman mynduðu þessi verk og ótal mörg önnur stórglæsilega heild með breiða vídd. Mikið líf var á kynningardögunum, þar sem handverksfólk var að störfum á staðnum og fyrir þá sem heilluðust uppúr skónum voru söluborð svo hægt var að taka sýnishorn með sér heim. Þá voru skemmtilegar uppákomur alla dagana.
Sýningin var opin dagana 11. -14. maí og eins og sést á myndunum var mjög góð mæting og allir ofsalega ánægðir með afraksturinn enda sýningin í alla staði einstaklega vel heppnuð.