Dagsferð 3. júní á vegum félagsmiðstöðvarinnar að Vesturgötu 7 - allir velkomnir
02.06.2010
Upplestur á frétt 
Farið verður í Hvalfjörð, Borgarfjörð og Hvanneyri. Ekið um Hvalfjörð og Dragháls að Hvanneyri. Ullarsafnið og Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri skoðað undir leiðsögn Guðjóns R. Jónassonar. Hádegismatur innifalinn í verði. Borðað verður á Hvanneyri, smásteik, súpa og kaffi. Verð 7500 kr. Lagt af stað frá Vesturgötu 7 kl.8:50