Hverfahátíð Miðborgar og Hlíða
02.09.2010
Upplestur á frétt 
Hverfahátíð Miðborgar og Hlíða verður haldin laugardaginn 4. september kl. 13-15 á Kjarvalsstöðum.
Á staðnum verður karate, skátagrill, kaffi og kakó, andlitsmálun, hoppukastali, slökkviliðsbíll, sápukúlugaman, fótbolti, útileikir, Sólasögukona á sögubílnum Æringja, klifur og listasýning leiskólabarna.
Á dagskrá á sviði mun Svavar Knútur taka lagið, danssýningar verða frá Jóni Pétri og Köru og Kramhúsinu. Ungar stúlkur úr hverfinu munu sýna tælenskan dans, karatefélagið Þórshamar mun sýna listir sínar, nemendur úr 7. bekk Háteigsskóla munu taka lag úr Ávaxtakörfunni og Vitatorgsbandið mun spila nokkur lög.
Skottmarkaður verður á bílastæði Kjarvalsstaða frá kl. 11-15 og frítt verður í sundhöllina frá kl. 15-18.
Vonumst til að sjá sem flesta á staðnum!