Einelti er ekkert grín - Ungmennaráð Miðborgar og Hlíða
19.04.2011
Upplestur á frétt 
Ungmennaráð Miðborgar og Hlíða stóðu fyrir gerð fræðslumyndbandsins Einelti er ekker grín. Ráðið fékk styrk frá Evrópu unga fólksins. Í ráðinu eru ungmenni á aldrinum 14 - 18 ára og koma þau frá grunn og framhaldskólum í Miðborg og Hlíðum. Á disknum eru 6 stuttmyndir og sá ungmennráðið um að semja handrit, leikstýra, upptökur, klippingu og frágang á fræðslumyndbandinu. Diskurinn Einelti er ekkert grín verður dreift í alla grunnskóla landsins, áhugasamir geta haft samband við midborg.hlidar@reykjavik.is
Að lokum viljum við óska ungmennaráðinu til hamingju með frábært framtak :)