Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Styrkveitingar Hverfisráðs Miðborgar

03.05.2011

Upplestur á frétt 

Styrkveitingar Hverfisráðs Miðborgar.               

Hverfisráð Miðborgar vekur athygli á því að hægt er að sækja um styrki til hverfisráðsins vegna:

·         sérstakra viðburða eða verkefna í Miðborginni, m.a. vegna hverfishátíða, hreinsunarátaka, kynningarfunda um málefni Miðborgarinnar, íbúaþinga, nágrannavörslu eða hvatningarverðlauna.

·         íbúasamtökum er heimilt að sækja um styrki til að standa undir kostnaði af fundum eða öðrum viðburðum.

·         þá getur hverfisráð samið við útgáfufyrirtæki um kaup á tilteknum fjölda auglýsinga eða dálksentimetra í hverfisblaði.

Ekki er gert ráð fyrir styrkjum til að standa undir rekstrarkostnaði og fyrst og fremst er leitast við að styrkja verkefni sem falla að hlutverki Reykjavíkur eða teljast vera í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.

Umsóknir um styrki skulu berast framkvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, Sigtryggi Jónssyni, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík eða á netfangið sigtryggur.jonsson@reykjavik.is.

Í umsóknum skal koma fram nafn, kennitala og heimilisfang ábyrgðaraðila, greinargerð um verkefnið, markmið þess og framgang. Hafi umsækjandi áður hlotið styrk frá öðrum nefndum eða stofnunum á vegum Reykjavíkurborgar eða sótt um slíka styrki, skal gerð grein fyrir því í umsókninni og hafi umsækjandi fengið styrk skal umsókninni fylgja skilagrein um nýtingu hans.

Verði umsókn samþykkt skal greinargerð um nýtingu fjárins liggja fyrir svo fljótt sem verða má að verkefni loknu og eigi síðar en um næstu áramót. Viðburðir og verkefni eru ekki styrkt eftirá. Styrkveiting felur ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar.