Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Til hamingju Anh-Dao með fálkaorðuna

19.06.2006

Upplestur á frétt 

Til hamingju Anh-Dao

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson sæmdi Anh-Dao Tran heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu ásamt 10 öðrum einstaklingum þann 17. júní sl. fyrir störf í þágu nýrra Íslendinga og íslensks fjölmenningarsamfélags.

Anh-Dao er kennslufræðingur að mennt og er verkefnastjóri tilraunaverkefnisins Framtíð í nýju landi. Hún er með skrifstofuaðstöðu ásamt starfsmanni sínum Hilmu Hólmfríði Sigurðardóttur félagsráðgjafa í Þjónustusmiðstöð Miðborgar og Hlíða.

Framtíð í nýju landi er þriggja ára tilraunaverkefni sem hefur það hlutverk að efla víetnömsk ungmenni á aldrinum 15-25 ára til þess að afla sér menntunar og skipuleggja líf sitt.

Markmið með starfi Framtíðar í nýju landi er að                     

• Bæta lífsskilyrði víetnamskra ungmenna
• Auka möguleika þeirra í starfi
• Auka þekkingu þeirra á möguleikum til menntunar
• Efla samstarf faghópa

Sjá nánar upplýsingar um Framtíð í nýju landi

Fálkaorðan