Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Forvarnarstefna í Miðborg og Hlíðum

26.06.2006

Upplestur á frétt 

Samstarf við íbúa Miðborgar og Hlíða um forvarnir í hverfinu

 

Forvarnarstefna Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarráði þann 20. desember sl. Stefnan tekur til allra barna og ungmenna frá fæðingu til tvítugs, foreldra og allra sem að málefnum þeirra og uppeldi koma. Áhersla er á að forvarnir hefjist strax í barnæsku, séu heildstæðar, víðtækar og sameini krafta og störf borgarbúa og borgarstarfsmanna.

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða hefur umsjón með starfinu og framkvæmd forvarnarstefnunnar í hverfinu og er hlutverk hennar að leiða saman í starfi alla þá sem koma að málefnum barna og ungmenna. Sérstakur forvarnarhópur er starfandi innan þjónustumiðstöðvarinnar til að fylgja eftir stefnu borgarinnar.

Starfsmenn í Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða leggja sérstaka áherslu á samstarf við íbúa, stofnanir, félagasamtök o.fl. í hverfinu til að fylgja eftir forvarnarstefnunni, ásamt hugmyndum að verkefnum sem hægt er að vinna að í tengslum við stefnuna.

Vinsamlegast hafið samband við Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða í síma 411 1600.

Nánar um forvarnarstefnu Reykjavíkur

Leiðarljós forvarnarstefnunnar er að skapa öllum börnum og ungmennum uppeldisaðstæður og umhverfi sem efli sjálfstraust þeirra og sjálfsmynd, einkennist af samkennd og býr yfir viðeigandi stuðningsúrræðum þegar þörf krefur.

Markmið 

Almennar forvarnir

Að börn og ungmenni alist upp við góða andlega líðan, heilsu og jákvæða sjálfsmynd svo merkja megi mælanlegan árangur 2010.

Sértækar forvarnir

 Að koma í veg fyrir og draga úr neikvæðri frávikshegðun barna og ungmenna s.s. vímuefnaneyslu, reykingum, ofbeldi, afbrotum og öðru sem bregðast þarf sérstaklega við hverju sinni, meðþað að leiðarljósi:

  • Að neysla vímuefna mælist ekki meðal grunnskólanema árið 2010
  • Að dregið hafi úr neyslu allra vímuefna á framhaldsskólum árið 2010
  • Að börn alist upp án þess að verða fyrir ofbeldi og einelti árið 2010

Framkvæmd 

Ábyrgð á að stefnan verði innleidd er hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar sem jafnframt hefur eftirlit með framkvæmd.Framkvæmd og nánari útfærsla er á ábyrgð þjónustumiðstöðva í hverfum borgarinnar í samstarfi við börn og ungmenni sem og foreldra þeirra, íbúa og stofnanir sem á einn eða annan hátt koma að málefnum barna og ungmenna.