Opinn íbúafundur um Nýjan Landspítala
19.09.2011
Upplestur á frétt 
Íbúar í Miðborg og Hlíðum, Holtum og Norðurmýri.
Opinn íbúafundur um Nýjan Landspítala
á vegum hverfisráða Miðborgar og Hlíða og Íbúasamtaka Miðborgar og Íbúasamtaka 3. hverfis, verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur, þriðjudaginn 20. september kl. 20.
Dagskrá:
1.Formaður verkefnisstjórnar spítalans ræðir um markmiðið með byggingu Nýs Landspítala
2.Fulltrúi arkitektanna kynnir lausn þeirra til að mæta markmiðunum
3.Formaður skipulagsráðs Reykjavíkur ræðir um aðkomu Reykjavíkurborgar
4.Pallborðsumræður með framsögumönnum ásamt varaformanni umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur.
Mætum öll og kynnum okkur stöðu málsins og fáum svör við spurningum okkar.
Hverfisráð Miðborgar, Íbúasamtök Miðborgar, Hverfisráð Hlíða, Íbúasamtök 3. hverfis.