Akstursþjónusta fyrir eldri borgara
28.06.2006
Upplestur á frétt 
Akstursþjónusta eldri borgara er ætluð fyrir þá íbúa Reykjavíkur sem eru 67 ára og eldri, búa sjálfstætt og eru ófærir um að nota almenningssamgöngur vegna langvarandi hreyfihömlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki.
Markmiðið með akstursþjónustu fyrir eldri borgara er að gera þeim kleift að búa lengur heima. Að öllu jöfnu er um að ræða akstursþjónustu í læknisheimsóknir, skipulagða endurhæfingu og/eða félagsstarf sem er til þess að fallið að rjúfa félagslega einangrun. Með skipulagðri endurhæfingu og/eða skipulögðu félagsstarfi er átt við endurhæfingu og félagsstarf sem er endurtekið reglulega yfir ákveðinn tíma og skipulagt, eins og þátttaka í námskeiðum og starf innan félagasamtaka.
Umsókn um akstursþjónustu eldri borgara skal berast til þjónustumiðstöðva í því hverfi þar sem umsækjandi býr.
Íbúar í Miðborg og Hlíðum sem vilja sækja um aktursþjónustu, snúi sér til Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða að Skúlagötu 21.