Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Eitt best varðveitta leyndarmál borgarinnar

14.08.2006

Upplestur á frétt 

Fólk við handavinnu Aflagranda 40

Þrjár félagsmiðstöðvar Þjónustu- og rekstrarsviðs verða með opið hús laugardaginn 19. ágúst í tilefni af menningarnótt. Þær eru félagsmiðstöðin að Aflagranda 40, Vitatorgi og Vesturgötu 7. Fjölbreytt dagskrá hefur verið skipulögð og kennir þar ýmissa grasa.

Halldóra Guðmundsdóttir, deildarstjóri félagsstarfsins á Vesturgötu 7, leggur áherslu á að dagskráin sé öllum opin. Um áramótin 2000 var félagsmiðstöðvunum breytt frá því að vera einungis ætlaðar 67 ára og eldri í það að vera öllum opnar. „Þetta er eitt best varðveitta leyndarmál borgarinnar“ segir Halldóra sem vill nota tækifærið og kynna starfsemina fyrir sem flestum.

Meðal þess sem boðið verður upp á í félagsmiðstöðinni Vesturgötu 7 er handverkssala en hægt er að leggja stund á hvers kyns handverk í félagsmiðstöðinni. Einnig verður hægt að sjá handverksfólk að störfum „Við viljum sýna að allir geti gert þetta og gera starfið þannig sýnilegt“ útskýrir Halldóra.

Tónlistinni verður gert hátt undir höfði á Vesturgötunni og má nefna að Dixielandsveit Árna Ísleifs mun leika nokkur lög. Auk þess mun Sigvaldi Þorgilsson danskennari spila tónlist „Hann mun svo eflaust leiða línudans sem allir geta tekið þátt í,“ sagði Halldóra að lokum.

Félagsmiðstöðin að Aflagranda 40 og Þjónustumiðstöð Vesturbæjar hafa skipulagt hafnargöngu í samvinnu við Víkina, Sjóminjasafnið við Grandagarð. Í henni mun Helgi M. Sigurðsson leiða göngu frá Vesturgötu 7 að safninu. Gengið verður um vesturbæinn og sagt frá þróun hafnarinnar sem oft er nefnd lífæð borgararinnar. Við komuna á safnið mun Ragnar Bjarnarson svo flytja sjómannalög við undirleik Þorgeirs Ástvaldssonar.

Dagskráin er öllum opin og aðgangur ókeypis. Borgarbúar eru hvattir til að láta sjá sig.

Nánar má lesa um dagskrár félagmiðstöðvanna hér:

Dagskrá Vesturgötu 7 og Vitatorgi 
Dagskrá Aflagranda 40

Hægt er að fara á dagskrárvef menningarnætur hér