Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Íbúahátíð á Lynghagaleikvellinum

17.08.2010

Upplestur á frétt 

Miðvikudaginn 18. ágúst nk. er mikill hátíðisdagur. Þann dag á Reykjavíkurborg 224 ára afmæli og vinafélag Lynghagaleikvallarinns 12. mánaða afmæli. Að því tilefni býður Grímur, vináttufélag leikvallarinns við Lynghaga til afmælishátíðar.

Allur dagurinn er afmælisdagur og er fólk því hvatt til að koma á leikvöllinn, setjast niður og spjalla í garðinum allan daginn en formleg dagskrá hefst stundvíslega klukkan 18:00.

Fólk er eindregið hvatt til að taka með sér pyslur á grillið eða bakkelsi á borðið og svo auðvitað hátíðarskapið. Þar að auki verða léttar veitingar í boði frá Melabúðinni, Björnsbakaríi og Emmess ís.

Stutt ávörp verða ásamt samtölum, eintölum og óvæntum uppákomum.

Hvernig sem veður verður þá er mikilvægast að koma saman með sól í sinni og njóta samveru á fallegum leikvelli.