Mikil hreyfifærni í Hagaborg
10.05.2011
Upplestur á frétt 
Fimm ára börnin í Hagaborg kunna ýmislegt fyrir sér í íþróttum. Í hverri viku fara þau í íþróttatíma út í KR-heimilið og skemmta sér í margvíslegum leikjum sem miða að því að efla hreyfifærni þeirra, samhæfingu og félagsanda.
Í morgun var líf og fjör í íþróttasalnum í KR-heimilinu. Börnin léku sér í hópum og spiluðu ýmist körfubolta, handbolta eða gerðu jafnvægisæfingar. Þóra Sif Sigurðardóttir stjórnaði barnahópnum og tók þau svo í notalega slökun eftir allan hamaganginn. Þóra Sif segir þessar hreyfistundar afar skemmtilegar og gefandi. Börnin búi að því til framtíðar að hafa verið í skipulögðu íþróttastarfi svona ung, með því sé lagður grunnur að heilbrigði líferni þar sem börnin læri gildi hreyfingar og hollra lífshátta.