Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Þátttakendur á fundinum

Starfsdagur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík 19. september 2011 | 07.11.2011

Þann 19. september 2011 var haldinn starfsdagur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík. Á fundinn var boðið notendum, kjörnum fulltrúum, stjórnendum og lykilstarfsmönnum á Velferðarsviði, Skóla-og frístundasviðs Reykjavíkuborgar og Hins hússins.

Lára Björnsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu

Lög og reglugerðir um málefni fatlaðra –áhrif á þjónustu | 17.10.2011

Á kynningunni var farið yfir helstu breytingar í lögum um málefni fatlaðs fólks sem tóku gildi þann 1. janúar 2011, nýja reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu, ný lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og reglugerð um trúnaðarmenn fatlaðs fólks.

Trúnaður

Trúnaðarmenn fatlaðra | 03.06.2011

Trúnaðarmenn fatlaðra hafa verið skipaðir. Reykjavík og Seltjarnarnes: Halldór Gunnarsson s. 858 1550 Maggý Hrönn Hermannsdóttir s. 858 1627

barn

SIS mat | 09.04.2011

Þann 8. apríl hélt verkefnisstjórn um mat á stuðningsþörf (SIS) í samvinnu við samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks fyrir málþingi undir yfirskriftinni Mat á stuðningsþörf (SIS) innihald - aðferðafræði - úrvinnsla.

Breytingastiginn

Upplýsinga- og samráðsfundur | 09.05.2011

Þann 5. maí sl. hélt verkefnisstjóri yfirfærslunnar upplýsinga- og samráðsfund með framkvæmdastjórum þjónustumiðstöðva og deildarstjórum.

Stelpa

Frumvarp til laga um réttindagæslu fatlaðs fólks | 09.05.2011

Frumvarp til laga um réttindagæslu fatlaðs fólks liggur nú fyrir og er í umsagnarferli. Í frumvarpinu er fjallað um hlutverk og verkefni trúnaðarmanna. Þar er einnig gerð grein fyrir hlutverki persónulegra talsmanna sem er nýjung á sviði réttindagæslu. Tengill á frumvarpið er inni í fréttinni.

Sendiherrarnir ásamt innanríkisráðherra

Sendiherrar um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks | 09.05.2011

Þroskahjálp hefur verið með námskeið fyrir fatlað fólk þar sem markmiðið er að þjálfa fatlað fólk í að vera sendiherrar vegna samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

compupaye.com

Ný reglugerð um trúnaðarmenn fatlaðs fólks | 25.02.2011

Komin er út ný reglugerð um trúnaðarmenn fatlaðs fólks nr. 172/2011

Samband íslenskra sveitafélaga

Upplýsingafundur um fjármál vegna yfirfærslu á þjónustu við fatlað fólk | 24.02.2011

Samband íslenskra sveitarfélaga og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga stóðu fyrir upplýsingafundi þann 23. febrúar.

Kynningarfundur 8.feb.2011

Kynningarfundur sviðstjóra og formanni velferðarráðs | 24.02.2011

Nýtt starfsfólk Velferðarsviðs var boðið velkomið á opnum fundum til sviðsins þann 8. og 16. febrúar.

Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar

Kynning á yfirfærslunni hjá Mannréttindaráði | 10.02.2011

María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri kynnti tilfærslu á þjónustu við fatlað fólk frá ríki til Reykjavíkurborgar á fundi mannréttindaráðs þann 8. febrúar.

Reykjavík

STÖRF TENGILIÐS NOTENDA | 03.02.2011

Eins og við sögðum frá þann 14. desember síðastliðinn þá tók Kári Auðar Svansson til starfa sem tengiliður notenda vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar.

Samráðsfundur 27.janúar 2011

Samráðsfundur 27.janúar 2011 | 28.01.2011

Fimmtudaginn 27. janúar var haldinn samráðsfundur vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar með framkvæmdastjórum þjónustumiðstöðva, deildarstjórum og rekstrarstjórum

Seltjarnarnes

Samvinna Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar vegna þjónustu við fatlað fólk | 20.01.2011

Reykjavíkurborg og Seltjarnarnesbær hafa gert með sér samning um að mynda sameiginlegt þjónustusvæði um þjónustu við fatlað fólk.

Flutningarnir

Samráðsfundur með þjónustustjórum og þjónustufulltrúum | 19.01.2011

Miðvikudaginn 19. janúar hélt María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri, samráðsfund með þjónustustjórum þjónustumiðstöðva og þjónustufulltrúum

Reykjavík

Framtíðarsýn í þjónustu við fatlað fólk | 19.01.2011

Borgarstjórn samþykkti einróma á fundi sínum þann 18. janúar framtíðarsýn í þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík og bauð um leið fatlaða borgarbúa velkomna í þjónustu borgarinnar.

Skjöl

Ný lög og reglugerðir í tengslum við yfirfærsluna | 17.01.2011

I desember síðastliðnum voru ný lög um málefni fatlaðs fólks samþykkt á alþingi auk þess sem nokkrar áhugaverðar reglugerðir litu dagsins ljós á síðasta degi gamla ársins. Hér má sjá tengla á lög og reglugerðir sem tengjast yfirfærslu málefna fatlaðra.

Við störf

Atvinna með stuðningi fyrir fatlað fólk | 14.01.2011

Velferðarsvið hefur gert samkomulag við Vinnumálastofnun um að Atvinna með stuðningi (AMS) verði á ábyrgð Vinnumálastofnunar árið 2011. Umsóknir fara í gegnum AMS og þar fást allar upplýsingar um úrræðið. Símanúmerið þar er 5331370.

Velferðarsvið

Hvar sótt um þjónustu fyrir fatlað fólk hjá Reykjavíkurborg? | 05.01.2011

Sótt er um þjónustu við fatlað fólk á sérstöku umsóknareyðublaði sem er að finna á Rafrænu Reykjavík. Frekari upplýsingar um umsóknir finnurðu með því að opna fréttina.

Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar

Póstur frá sviðsstjóra til starfsmanna | 04.01.2011

Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs sendi póst í dag á alla starfsmenn Velferðarsviðs þar sem hún kynnir yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar, býður nýtt starfsfólk velkomið til starfa á Velferðarsviði og þakkar þeim sem hafa lag hönd á plóginn í undirbúningsferlinu. Í fréttinni má sjá póstinn frá sviðsstjóra.

Reykjavík

Ný þjónusta hjá Reykjavíkurborg | 03.01.2011

Þann 1. janúar 2011 færðist þjónusta við fatlað fólk og lagalegar skyldur sem hafa verið á hendi Svæðisskrifstofa til sveitarfélaga. Reykjavíkurborg hefur þar með tekið yfir þjónustu og skyldur sem SSR hefur séð um fram til þessa.

Fundarmenn

Samráðsfundur vegna yfirfærslunnar þann 28. desember | 28.12.2010

Í dag var haldinn samráðsfundur vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar þar sem farið var yfir stöðu mála.

Jólagaman

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. | 21.12.2010

Um leið og við þökkum ykkur samfylgdina hér á Gáttinni þetta árið viljum við óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Jólakveðjur, Upplýsingagátt yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar.

Gerðuberg

Kynning á hagsmunasamtökum fatlaðs fólks | 17.12.2010

Fimmtudaginn 9. desember var síðasta fræðsla haustsins vegna yfirfærslu málefna fatlaðra en þá kynntu fulltrúar hagsmunasamtaka starfsemi félaganna og helstu áherslur sínar.

Reykjavíkurborg
reykjavik.is

Tengiliður notenda | 14.12.2010

Kári Auðar Svansson hefur verið ráðinn til að gegna hlutverki tengiliðar notenda vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar.

Kynning í Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis.

Kynningar fyrir starfsmenn SSR á þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar | 30.11.2010

Þessa dagana stendur starfsfólki á starfseiningum SSR sem flytjast til borgarinnar þann 1. janúar til boða að koma á heimsóknir á þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar þar sem Reykjavíkurborg sem vinnustaður er kynnt, starfsemi og stjórnskipulag Velferðarsviðs og viðkomandi þjónustumiðstöð.

http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/5272

Heildarsamkomulag um tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga undirritað í dag | 23.11.2010

Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga var undirritað í dag. Sú þjónustu sem hefur skv. lögum nr. 59/1992 verið veitt á svæðisskrifstofum um landið verður færð til sveitarfélaga frá og með 1. janúar næstkomandi

16.11.10

Starfsmannamál og yfirfærsla málefna fatlaðra | 19.11.2010

Starfsmannaskrifstofa Fjármálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitafélaga og Félags-og tryggingamálaráðuneytis stóðu fyrir tveimur kynningarfundum dagana 16. nóvember og 18. nóvember fyrir starfsmenn SSR vegna yfirfærslunnar.

Samvinna.

http://ideascale.com/

Samantekt á stöðu starfshópa vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar. | 18.11.2010

Vinna starfshópa vegna yfirfærslunnar er komin á fullt skrið og eru margar hendur sem vinna að því að yfirfærslan gangi snuðrulaust og sem best.

Saman erum við best

Kynningarfundur fyrir starfsmenn SSR | 12.11.2010

Haldnir verða kynningarfundir í næstu viku fyrir starfsfólk SSR til þess að kynna stöðu yfirfærslunnar, réttindi starfsmanna og nýjan vinnuveitanda, Reykjavíkurborg.

Freyja Haraldsdóttir og aðstoðarkona

Sjálfstætt líf á Íslandi | 12.11.2010

Fimmtudaginn 11.nóvember var haldið námskeið um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) fyrir starfsfólk Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra

Hverfisskipting Reykjavíkurborgar og þjónustumiðstöðvar

Kynning á yfirfærslunni var haldinn í gær fyrir fatlað fólk og aðstandendur í Reykjavík | 09.11.2010

FFA - fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur stendur fyrir fundarröð þar sem kynntur er flutningur á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga um næstu áramót. Fundur fyrir íbúa Reykjavíkur og Seltjarnarness var haldinn í gær, 9. nóvember.

Aðgengi fyrir hjólastóla

Úttekt á aðgengi að þjónustumiðstöðvum í hverfum Reykjavíkurborgar | 28.10.2010

Gerð hefur verið úttekt á aðgengi að þjónustumiðstöðvum í hverfum Reykjavíkurborgar

Rannveig Traustadóttir, prófessor og forstöðumaður
Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum
Háskóla Íslands

Námskeiðið "Fötlun: Nýr skilningur og nýjar áherslur" | 28.10.2010

Miðvikudaginn 26. október var haldið í Gerðubergi námskeiðið Fötlun: Nýr skilningur og nýjar áherslur sem var haldið í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands.

Drög að framtíðarsýn Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk

Vilt þú hafa áhrif á framtíðarsýn borgarinnar í þjónustu við fatlað fólk? | 25.10.2010

Á fundi borgarstjórnar þann 19. október voru lögð fram til umræðu drög að framtíðarsýn Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk. Samþykkt var að senda drögin í opið umsagnarferli.

Þroskaþjálfafélag Íslands

Upplýsingafundur vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga | 14.10.2010

Miðvikudaginn 13. október stóð Þroskaþjálfafélag Íslands fyrir upplýsingafundi vegna flutnings þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga um næstkomandi áramót.

Saman erum við best!

Viltu vera skráður á póstlista og fylgjast með fréttum af tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til Reykjavíkurborgar? | 14.10.2010

Þeir sem hafa áhuga á því að fylgjast með undirbúningsvinnu í Reykjavík vegna yfirfærslunnar eru hvattir til þess að fylgjast með hér á Gáttinni.

Aspirnar í Hallormstað

Réttindagæsla í nærþjónustu - ráðstefna Þroskahjálpar | 14.10.2010

Þroskahjálp stóð fyrir ráðstefnu laugardaginn 9. október í tengslum við árlegan fulltrúa fund sinn á Hallormsstöðum þar sem fjallað var um réttindagæslu í nærþjónustu.

Samvinna

Staða starfshópa vegna yfirfærslu málefna fatlaðra | 08.10.2010

Starfshópar hafa tekið til starfa vegna flutnings á þjónustu við fatlað fólk frá ríki til Reykjavíkurborgar. Vissulega er um þróunarverkefni til nokkurra ára að ræða en nauðsynlegt að hefja undirbúining sem fyrst.

Reykjavik

Staðan í byrjun október. | 08.10.2010

Miðvikudaginn 6. október var forstöðumannafundur hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík þar sem meðal annars var fjallað um tilfærslu þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík.

Horft til framtíðar.
Linda Ólafsdóttir

Málefni fatlaðs fólks á tímamótum - horft til framtíðar | 28.09.2010

Þann 22. september var haldið málþing um málefni fatlaðs fólks sem eru á tímamótum um þessar mundir

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða

Aðgengi að þjónustumiðstöðvum | 23.09.2010

Gerð verður úttekt á aðgengi að þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar.

Margir mættu í Gerðubergið á þessum fagra og bjarta haustmorgni.

Námskeið um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks | 17.09.2010

Fimmtudaginn 16. september var stór áfangi í undirbúningsvinnu vegna fyrirhugaðrar tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar en þá var fyrsta námskeiðið haldið fyrir starfsmenn Velferðarsviðs og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík.

Forsíða upplýsingagáttarinnar

Ný og enn betri upplýsingagátt um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar | 03.09.2010

dag opnar ný og aðgengilegri upplýsingagátt um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar. Helstu breytingar eru þær að nú er búið að hanna sérstaka síðu fyrir www.reykjavik.is/fatladir

Lísa Ólafsdóttir

Nýr starfsmaður kominn til starfa til þess að viðhalda upplýsingagáttinni | 31.08.2010

Í sumar var sótt um styrk úr atvinnuátakssjóði til þess að ráða starfsmann til að viðhalda upplýsingagáttinni, setja inn fréttir og fundargerðir frá starfshópum.

Maður í hjólastól

Skipan stýrihóps og ráðgjafateymis vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar | 21.07.2010

Þann 8. júlí síðastliðinn samþykkti borgarráð að skipa stýrihóp til að fara með yfirumsjón með yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar.

Skrifað undir samkomulag um fjárhagsramma tilfærslunnar

Skrifað hefur verið undir samkomulag um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða | 20.07.2010

Viðamesta breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga verður þann 1. janúar næstkomandi þegar þjónusta við fatlaða færist frá ríki til sveitarfélaga.

Spurning dagsins

Niðurstöður hugarflugsfundar um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík | 20.07.2010

Hvað á Reykjavíkurborg að leggja áherslu á í þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík á næstu árum? Niðurstöður hugarflugsfundarins eru hér

Fáni Sameinuðu þjóðanna

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks | 16.06.2010

Niðurstöður hugarflugsfundarins voru skýrar. Setja á mannréttindi á oddinn og taka mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í þróun þjónustu við fatlað fólk.

Lógó

Undirbúningur hjá Reykjavíkurborg kynntur á stjórnarfundi Þroskaþjálfafélags Íslands | 15.06.2010

Stjórn Þroskaþjálfafélags Íslands bauð Maríu, verkefnisstjóra yfirfærslunnar á stjórnarfund félagsins til þess að kynna undirbúningsvinnuna og stöðu mála mánudaginn 14. júní 2010.

Spurningin sem lögð var fyrir hópana í hugarfluginu

Vel heppnaður hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík | 08.06.2010

Mánudaginn 7. júní 2010 var haldinn hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík á næstu árum. Þátttakendur voru kallaðir til víðs vegar að enda snýr þjónusta við fatlað fólk að mörgum sviðum samfélagsins. Hópurinn var spurður að því hverjar áherslur Reykjavíkurborgar eigi að vera í þróun þjónustu við fatlað fólk í kjölfar yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.

Starfsmenn Velferðarsviðs á kynningu SSR í sumarblíðunni

Kynning á þjónustu og starfsemi Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík | 03.06.2010

Stjórnendur Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR) buðu starfsmönnum Velferðarsviðs á kynningu á þjónustu og starfsemi SSR í gær, miðvikudag 2. júní. Meiri fréttir af fundinum...

Séð yfir Reykjavík

Hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík | 01.06.2010

Mánudaginn 7. júní nk. verður haldinn hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlaða í Reykjavík þar sem lykilaðilar, það er starfsmenn ríkis og borgar sem og hagsmunasamtök, koma saman og ræða hverjar áherslur Reykjavíkurborgar í uppbyggingu þjónustu við fatlaða eiga að vera næstu árin í kjölfar yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar.

Séð yfir Tjörnina í Reykjavík

Kynning á þjónustu Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík | 31.05.2010

Kynning á þjónustu Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík miðvikudaginn 2. júní frá kl. 14-16. Enn er hægt að skrá sig!

Logo Sjálfsbjargar

Undirbúningur hjá Reykjavíkurborg kynntur á landsþingi Sjálfsbjargar 29. maí 2010 | 31.05.2010

Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra bauð verkefnisstjóra yfirfærslunnar hjá Reykjavíkurborg að kynna undirbúning verkefnisins á árlegu þingi samtakanna laugardaginn 29. maí 2010.

María Rúnarsdóttir, verkefnastjóri

Kynning á undirbúningi yfirfærslu á forstöðumannafundi SSR | 27.05.2010

Í gær kynnti María Rúnarsdóttir, verkefnastjóri yfirfærslunnar, undirbúningsvinnu vegna verkefnisins fyrir forstöðumönnum og stjórnendum SSR. Undirbúningur er að hefjast af fullum krafti og er mikilvægt að starfsmenn SSR taki virkan þátt í undirbúningnum.

Hugrún og Kristín

Mat á stuðningsþörf fatlaðs fólks hefst í maí 2010 | 20.05.2010

Í tengslum við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga hafur sérstakt matstæki verið þýtt til þess að hægt sé að meta stuðningsþörf fatlaðra með hlutlægu matstæki, svokölluðu SIS mati (Support Intensity Scale).

Yfir Reykjavík

Undirbúningur hafinn vegna yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar | 19.05.2010

Samkvæmt viljayflýsingu milli ríkisins og Sambands ísl. sveitarfélaga sem undirrituð var þann 13. mars 2009 er fyrirhugað að færa þjónustu við fatlaða sem nú er veitt af Svæðisskrifstofum málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga þann 1. janúar 2011. Undirbúningur er hafinn í Reykjavík til að hrinda verkefninu úr vör sendi Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs öllum starfsmönnum sviðsins tölvupóst til upplýsingar um verkefnið.

Séð yfir Seláshverfi í Árbæ

Opnun upplýsingagáttar vegna yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar | 19.05.2010

Í dag opnar upplýsingagátt Reykjavíkurborgar vegna yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar sem fyrirhuguð er þann 1. janúar 2011. Á upplýsingagáttinni verður að finna upplýsingar um verkefnið og stöðu mála hverju sinni.