Undirbúningur hafinn vegna yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar
19.05.2010
Upplestur á frétt 
Samkvæmt viljayflýsingu milli ríkisins og Sambands ísl. sveitarfélaga sem undirrituð var þann 13. mars 2009 er fyrirhugað er að færa þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga þann 1. janúar 2011. Um er að ræða alla þá þjónustu sem og lagalega ábyrgð sem Svæðisskrifstofur málefna fatlaðra hafa sinnt fram til þessa.
Markmið tilfærslu þjónustu við fatlaða skv. viljayfirlýsingunni er:
- Bæta þjónustu og auka möguleika til að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum
- Tryggja að eitt stjórnsýslustig beri ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu, bæta samhæfingu og draga úr skörun ábyrgðarsviða/stjórnsýslustiga
- Stuðla að samþættingu nærþjónustu við íbúa sveitarfélaga
- Styrkja sveitarstjórnarstigið
- Einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
Sérstök verkefnisstjórn ríkis og sveitarfélaga um málefni fatlaðra vinnur nú að undirbúningi yfirfærslunnar, þ.e. samræmdum gögnum en sveitarfélögunum hverju fyrir sig ber að undirbúa yfirfærsluna í sínu sveitarfélagi. Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs, situr í verkefnisstjórninni.
Vakin er athygli á upplýsingavef sem settur hefur verið settur á fót, undirvefur á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins og eru öll gögn verkefnisstjórnar sem orðin eru opinber sett á heimasíðuna.
Undirbúningur er nú hafinn í Reykjavík vegna yfirfærslu þjónustu við fatlaða sem nú er veitt af Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. María Rúnarsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnisstjóri á skrifstofu velferðarmála, hefur verið ráðin til eins árs sem verkefnisstjóri yfirfærslu á málefnum fatlaðra og hóf hún störf við verkefnið um miðjan mars sl.
Haldinn var starfsdagur velferðarráðs og yfirstjórnar Velferðarsviðs þann 23. mars sl. þar sem stjórnendur Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík kynntu starfsemi svæðisskrifstofunnar og staða yfirfærslu málefna fatlaðra á landsvísu var rædd.
Borgarráð hefur skipað stýrihóp kjörinna fulltrúa til að fara með yfirumsjón með yfirfærslu á málefnum fatlaðra og er María starfsmaður stýrihópsins. Einnig starfar undirrituð þétt með stýrihópnum til að tryggja upplýsingaflæði milli verkefnisstjórnarinnar og kjörinna fulltrúa í Reykjavík. Hlutverk stýrihópsins er að greina áhrif yfirfærslunnar á skipulag og þjónustu borgarinnar og vinna að nauðsynlegri stefnumótun vegna breytinganna.
Yfirfærsla málefna fatlaðra er umfangsmikið verkefni og mikilvægt er að undirbúa það vel eigi að takast vel upp en um er að ræða rekstur 49 starfsstöðva, flutning 640 starfsmanna í 393 stöðugildum og rekstur upp á 3,4 milljarða króna. Á næstu vikum verða skipaðir starfshópar um fjölmörg verkefni sem varða yfirfærsluna eins og þjónustu, mannauðsmál, fjármál og upplýsingatæknmál. Hefja fyrstu hóparnir störf strax í maí. Lögð verður áhersla á þátttöku starfsmanna Velferðarsviðs, starfsmanna Svæðisskrifstofu og hagsmunaaðila þar sem það á við.
Einnig er ráðgert að upplýsingagátt um verkefnið opni á vef borgarinnar í júní þar sem hægt verður að afla upplýsinga um verkefnið og stöðu þess í Reykjavík hverju sinni og koma á framfæri ábendingum.
Yfirfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga er mikið framfaraskref fyrir fatlaða og fjölskyldur þeirra sem geta þá leitað allrar þjónustu á einum stað. Yfirsýn sérfræðinga yfir málefni fjölskyldunnar verður meiri og þekking á málefnum fólks sem glímir við fötlun eykst hjá sveitarfélögum sem leiðir vonandi til enn betri þjónustu við fatlaða í nærumhverfi sínu, með bættu aðgengi og viðhorfsbreytingum í samfélaginu.
Á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar er mikill mannauður sem býr yfir þekkingu á þjónustu við fatlaða og hefur reynslu af samþættingu nærþjónustu í hverfum borgarinnar og er mikilvægt að starfsfólk komi að undirbúningsvinnunni og taki virkan þátt í því breytingaferli sem framundan er.