Opnun upplýsingagáttar vegna yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar
19.05.2010
Upplestur á frétt 
Í dag opnar upplýsingagátt Reykjavíkurborgar vegna yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar sem fyrirhuguð er þann 1. janúar 2011. Á upplýsingagáttinni verður að finna upplýsingar um verkefnið og stöðu mála hverju sinni. Hér verða einnig upplýsingar um starfshópa sem eru að störfum og verða fundargerðir hópanna birtar hér ásamt fréttum af starfinu. Hægt er að senda fyrirspurnir og ábendingar til verkefnisstjóri yfirfærslu málefna fatlaðra. Upplýsingagáttin er hugsuð til upplýsingar fyrir starfsmenn Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og starfsmenn Reykjavíkurborgar sem vilja fylgjast með verkefninu og afla sér upplýsinga um það. Upplýsingagáttin er ekki síður hugsuð til upplýsingar fyrir notendur og aðstandendur þeirra, hagsmunasamtök og alla þá sem kunna að hafa áhuga á því að fylgjast með yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar.