Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Mat á stuðningsþörf fatlaðs fólks hefst í maí 2010

20.05.2010

Upplestur á frétt 

Í tengslum við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga hafur sérstakt matstæki verið þýtt til þess að hægt sé að meta stuðningsþörf fatlaðra með hlutlægu matstæki, svokölluðu SIS mati (Support Intensity Scale). Tilgangurinn er að meta stuðningsþörf fullorðins fatlaðs fólks til búsetu, vinnu og samfélagsþátttöku.

Í Reykjavík nær matið til:

  • Íbúa í búsetuþjónustu og frekari liðveislu hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík.
  • Íbúa í búsetuþjónustu og frekari liðveislu á vegum styrktarfélagsins Áss.
  • Fatlaðra íbúa í þjónustukjörnum á vegum Reykjavíkurborgar.

Stuðningsþörf um 420 einstaklinga sem búa í Reykjavík verður metin og hefst vinnan við matið í maí og er áætlað að henni ljúki um miðjan september.

Frekari upplýsingar er að sjá í frétt á á vef Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík.