Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Undirbúningur hjá Reykjavíkurborg kynntur á landsþingi Sjálfsbjargar 29. maí 2010

31.05.2010

Upplestur á frétt 

Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra bauð verkefnisstjóra yfirfærslunnar hjá Reykjavíkurborg að kynna undirbúning verkefnisins á árlegu þingi samtakanna laugardaginn 29. maí 2010. María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri yfirfærslunnar hjá Reykjavíkurborg kynnti undirbúninginn og verkefnið framundan.  María lagði áherslu á að undirbúningsvinnan er rétt að hefjast og að það sé stefna borgarinnar að hafa víðtækt samráð við alla hagsmunaaðila til þess að tryggja að vel verði staðið að verkefninu og notendur þjónustunnar finni sem minnst fyrir yfirfærslunni. Það er svo verkefni næsta árs að móta stefnu borgarinnar í þjónustu við fatlað fólk og þróa þjónustuna áfram með notandann í fyrirrúmi.

adobe pdf Glærur af fundinum eru hér>>>

Nýr formaður Sjálfsbjargar var kosinn á þinginu Grétar Pétur Geirsson og er honum óskað til hamingju.

Sjálfsbjörg samþykkti ályktun um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga og leggja samtökín áherslu á að þjónustu við fólk með hreyfihömlun verði bætt og færð til nútímahorfs.

adobe pdf Ályktunina má sjá hér>>>