Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík

01.06.2010

Upplestur á frétt 

Mánudaginn 7. júní nk. verður haldinn hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlaða í Reykjavík þar sem lykilaðilar, það er starfsmenn ríkis og borgar sem og hagsmunasamtök, koma saman og ræða hverjar áherslur Reykjavíkurborgar í uppbyggingu þjónustu við fatlaða eiga að vera næstu árin í kjölfar yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar.

Hverjir: Um 70 fulltrúum frá hagsmunasamtökum, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, þjónustumiðstöðvum borgarinnar og öðrum sviðum Reykjavíkurborgar er boðið til fundarins. Staðfesting á þátttöku fer fram þessa dagana og er útlit fyrir að allir þeir sem boðaðir voru á fundinn sendi fulltrúa sína.

Hvar: Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík frá kl. 9-12.  

Hvernig: Unnið verður í opnu hugarflugi þar sem fundarmenn setja áherslur í þróun þjónustu við fatlað fólk til næstu ára.

Hvað svo: Niðurstöður fundarins verða birtar á upplýsingagáttinni sem allra fyrst og verða hafðar til hliðsjónar við stofnun starfshópa á haustmánuðum um þróun þjónustu við fatlað fólk.