Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Kynning á þjónustu og starfsemi Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík

03.06.2010

Upplestur á frétt 

Stjórnendur Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR) héldu kynningu á þjónustu og starfsemi SSR fyrir starfsmenn velferðarsviðs, miðvikudag 2. júní.

Jón Heiðar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri SSR kynnti þjónustu við fatlaða í Reykjavík og þjónustuaðilana sem veita fötluðum sértæka þjónustu. Reykjavíkurborg er þar meðtalin. Ás styrktarfélag rekur einnig viðamikla þjónustu við fatlaða og flyst fjármagn vegna þess til borgarinnar þegar af yfirfærslunni verður. Athygli vekur að fáir fatlaðir búa í Vesturbæ en langmest þjónusta er í hverfum Laugardals og Háaleitis eða tæplega 40%.  

Halldór Kr. Júlíusson, sviðsstjóri þróunar- og greiningarsviðs,  fjallaði um fjölda fatlaðra í Reykjavík sem eru á skrá SSR. Samkvæmt skilgreiningu SSR á fötlun er átt við þann hóp barna og fullorðinna sem á rétt á sértækri þjónustu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Búseta fatlaðra er mjög mismunandi eftir hverfum borgarinnar.

Sólveig Steinsson, sviðsstjóri barnasviðs fjallaði því næst um þjónustu við fötluð börn. Barnasvið SSR þjónar börnum að 18 ára aldri og fjölskyldum þeirra.  Á sviðinu starfa þrír þroskaþjálfar. Helstu verkefni þeirra eru að gera tillögur að umönnunarmati og tryggja að stoðþjónustan nýtist sem best þeim sem þurfa á henni að halda. Börnum með umönnunarmat hefur farið fjölgandi síðastliðin ár og er brýnt að fylgjast með þeirri þróun áfram.

Hróðný Garðarsdóttir, sviðsstjóri fullorðinssviðs sagði frá sértækri þjónustu við fullorðna. Hún lagði áherslu á að fagleg þekking hvers og eins nýttist sem best fyrir þjónustuna í heild sinni. Til að ná þessu markmiði hefur SSR sett upp stjórnendahópa til að tryggja faglega uppbyggingu.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, sviðsstjóri starfsmannasviðs sagði frá mannauðsmálum. Starfsmenn SSR eru um 640 talsins. Stærstur hluti eða um 80% er í hlutastarfi og er meirihlutinn konur. Þroskaþjálfar eru fjölmennasti faghópurinn en einnig er fjöldi annarra faghópa að störfum.

Unnur Ágústsdóttir, sviðsstjóri rekstrarsviðs sagði frá rekstrarumfangi SSR og rekstrarlegum markmiðum stofnunarinnar. Rekstrarsvið hefur umsjón með öllu húsnæði á vegum SSR. Húsnæðismálin eru mjög flókin og eru vonir bundnar við að gerðar verði breytingar á húsnæðismálum fatlaðra samhliða yfirfærslu málaflokksins til að minnka flækjustigið.

Að lokum tók Jón Heiðar saman helstu ógnanir og tækifæri yfirfærslunnar. Tækifærin eru fjölmörg en þau helstu snú að heildstæðri þjónustu og einfaldara þjónustukerfi. 

Mikil ánægja var með kynninguna og vel að henni staðið. Eru stjórnendum SSR færðar kærar þakkir fyrir og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

Hér má sjá glærur af fundinum:

adobe pdf Jón Heiðar Ríkharðsson, þjónusta og starfsemi SSR>>>

adobe pdf Halldór K. Júlíusson, fatlaðir í Reykjavík>>>

adobe pdf Sólveig Steinsson, þjónusta við fötluð börn>>>

adobe pdf Hróðný Garðarsdóttir, þjónusta við fullorðna >>>

adobe pdf Guðný Anna Arnþórsdóttir, mannauðsmál >>>

adobe pdf Unnur Ágústsdóttir, rekstrarmál >>>

adobe pdf Jón Heiðar Ríkharðsson, tækifæri og ógnanir >>>

María Rúnarsdóttir notaði tækifærið í upphafi fundar og kynnti yfirfærsluverkefnið í örstuttu máli en stefna borgarinnar í undirbúningnum er að sem flestir starfsmenn ríkis og borgar sem og notendur, aðstandendur og hagsmunasamtök komi að verkefninu frá byrjun. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér upplýsingagáttina: www.reykjavik.is/fatladir og fylgjast með þróun mála.

adobe pdf María Rúnarsdóttir, undirbúningsvinna hjá Velferðarsviði>>>