Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
16.06.2010
Upplestur á frétt 
Niðurstöður hugarflugsfundarins voru skýrar:
Reykjavíkurborg á að setja mannréttindi á oddinn í þróun þjónustu við fatlað fólk á næstu árum og taka mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks .
Í 1. grein samningsins er kveðið á um markmið samningsins en þau eru að stuðla að því að fatlað fólk njóti allra mannréttinda og mannfrelsis til fulls og jafns við aðra, jafnframt því að vernda og tryggja slík réttindi og frelsi, og að auka virðingu fyrir mannlegri reisn þeirra.
Verkefnið framundan er að fræðast um samninginn um réttindi fatlaðs fólks, líta í eigin barm og skoða viðhorf okkar þannig að fatlað fólk í Reykjavík njóti virðingar og mannréttinda til jafns við aðra.
Hér má finna samninginn á vef félags- og tryggingamálaráðuneytis: http://www.felagsmalaraduneyti.is/media/acrobat-skjol/Samningur_fatladra.pdf
Hér má finna auðlesna útgáfu samningsins sem unnin er upp úr auðlesinni útgáfu Þroskahjálpar sem hefur gefið samninginn út á auðlesnu máli með myndum.
Hér má finna auðlesna útgáfu Þroskahjálpar: http://throskahjalp.is/Frettiroggreinar/SattmaliSthumrettindifatladra/