Niðurstöður hugarflugsfundar um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík
20.07.2010
Upplestur á frétt 
Mánudaginn 7. júní síðastliðinn var haldinn hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík eins og áður hefur komið fram á upplýsingagáttinni.
Fundarmenn voru spurðir að því hverjar áherslur Reykjavíkurborgar í kjölfar tilfærslu þjónustu við fatlað fólk eigi að vera á árunum 2011-2014, hvað eigi að setja á oddinn og hvar metnaður borgarinnar eigi að liggja.
Niðurstöður fundarins voru afgerandi. Reykjavíkurborg á að;
- hafa Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að leiðarljósi
- nýta tækifærið og koma á nýrri hugmyndafræði í málefnum fatlaðs fólks
- vera forystusveitarfélag í þjónustu við fatlað fólk
- setja sér heildstæða stefnumörkun um þjónustu við fatlað fólk og skýra framtíðarsýn
- tryggja víðtækt samráð við notendur, hagsmunasamtök, fræðasamfélagið
- tryggja samstarf fagfólks, sviða og stofnana
- tryggja nauðsynlega þekkingu og fræðslu
Hér má sjá helstu niðurstöður fundarins >>
Hér má sjá alla gulu miðana frá fundinum >>