Skrifað hefur verið undir samkomulag um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða
20.07.2010
Upplestur á frétt 
Þann 6. júlí síðastliðinn skrifuðu fjármálaráðherra, félags- og tryggingamálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður og framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga undir samkomulag um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða sem verður þann 1. janúar 2011. Markmið samkomulagsins er að færa ábyrgð á fjármögnun þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Samkomulagið felur í sér að útsvarshlutfall sveitarfélaga verður hækkað um 1,2% og tekjuskattshlutfall lækkað að sama skapi. Gert er ráð fyrir sérstökum framlögum á fjárlögum vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar sem verða 50 mkr. á árinu 2011, 100 mkr. á árinu 2012 og 150 mkr. árið 2013.
Vinna við undirbúning lagabreytinga og gerð heildarsamnings við sveitarfélögin er hafin en gert er ráð fyrir að heildarsamkomulag liggi fyrir um miðjan september næstkomandi. Í samningnum verða heildarmarkmið og forsendur yfirfærslunnar skilgreind auk þess sem tekið verður stöðu og réttindum starfsmanna, fasteignamálum, jöfnunarmálum og notendastýrðri persónulegri aðstoð.
Um er að ræða viðamestu breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá því grunnskólinn var fluttur til sveitarfélaganna árið 1996 en alls færast 10,7 milljarðar króna til sveitarfélaganna. Umfangsmesta þjónustan er í Reykjavík og því ljóst að mikil undirbúningsvinna er framundan svo tryggja megi farsæla tilfærslu þjónustu við fatlaða.
Hér má sjá frétt á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins >>
Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða >>