Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Skipan stýrihóps og ráðgjafateymis vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar

21.07.2010

Upplestur á frétt 

Þann 8. júlí síðastliðinn samþykkti borgarráð að skipa stýrihóp til að fara með yfirumsjón með yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar.

Hlutverk stýrihópsins er að tryggja að við flutning þjónustunnar til borgarinnar verði nýtt það tækifæri sem gefst til að bæta aðgengi og þjónustu við fatlað fólk í nærumhverfi sínu með Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að leiðarljósi. Stýrihópurinn starfar að undirbúningi tilfærslunnar út árið 2010 og verður til ráðgjafar á fyrstu mánuðum ársins 2011 meðan þjónustan er að mótast. Verkefni stýrihópsins er að greina áhrif yfirfærslunnar á skipulag og þjónustu borgarinnar, vinna að nauðsynlegri stefnumótun, markmiðssetningu og framtíðarsýn vegna breytinganna. Stýrihópinn skipa: Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs, Áslaug Friðriksdóttir, varaborgarfulltrúi, Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs, Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar og Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis. Starfsmaður hópsins er verkefnisstjóri yfirfærslu málefna fatlaðra á Velferðarsviði.

Borgarráð samþykkti jafnframt að skipa ráðgjafarteymi sem starfar með stýrihópnum, veiti ráðgjöf og verði leiðbeinandi vegna þátta sem snúa að stoðþjónustu borgarinnar í tengslum við yfirfærsluna s.s. fjármálum, starfsmannamálum og lögfræðilegum málum. Ráðgjafarhópinn skipa Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri, Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri og Kristbjörg Stephensen, borgarlögmaður.

Hér má sjá bókun borgarráðs þann 8. júlí 2010 um skipan stýrihóps, 12. liður >>