Námskeið um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
17.09.2010
Upplestur á frétt 
Fimmtudaginn 16. september var stór áfangi í undirbúningsvinnu vegna fyrirhugaðrar tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar en þá var fyrsta námskeiðið haldið fyrir starfsmenn Velferðarsviðs og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík.
Rúmlega 80 manns mættu á námskeið um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk sem haldið var í samstarfi við rannsóknasetur í fötlunarfræðum.
Helga Baldvins- og Bjargardóttir, lögfræðingur og þroskaþjálfi og MA nemi í fötlunarfræðum fjallaði um grundvallarhugsun að baki samnings, hvers vegna þörf er á sérstökm mannréttindasáttmála fyrir fatlað fólk og hvaða þýðingu hann hefur fyrir íslenskt samfélag og þjónustu við fatlað fólk.
Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar sagði frá mannréttindastefnu borgarinnar og hvaða þýðingu samningurinn hefur fyrir fatlað fólk í Reykjavík.
Að loknu hádegisverðarhléi völdu þátttakendur sér hópavinnu útfrá lykilgreinum samningsins eftir áhugasviði. Miklar umræður sköpuðust og greinilegt að fræðslan um samninginn hafði skilað sér og að umræðan um réttindi fatlaðs fólks í ljósi þjónustunnar er þörf eins og sjá má á myndum með fréttinni.
Í gær voru fyrstu skrefin tekin því orð eru til alls fyrst. Vonumst við til þess að skrefin verði miklu fleiri svo réttindi fatlaðs fólks verði virt og þjónustan einkennist af virðingu og metnaði fyrir fötluðu fólki.
Takk fyrir frábæran dag!
Hér má sjá glærur Helgu Baldvins- og Bjargardóttur >>>
Hér má sjá glærur Önnu Kristinsdóttur >>>
Stjórnmál og stjórnsýsla. Mannréttindi, fötlun og fjölskyldulíf >>> 