Málefni fatlaðs fólks á tímamótum - horft til framtíðar
28.09.2010
Upplestur á frétt 
Þann 22. september var haldið málþing um málefni fatlaðs fólks sem eru á tímamótum um þessar mundir. Yfirskrift málþingsins var :
Málefni fatlaðs fólks á tímamótum - horft til framtíðar en það var félags- og tryggingamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Öryrkjabandalag Íslands, Þroskahjálp, Rannsóknarsetur í fötlunarrfæðum og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.
Málþingið var afar vel sótt en um 350 manns mættu til að hlýða á erindin og taka þátt í umræðum í dags lok. Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs talaði út frá sjónarmiðum þess sem veitir þjónustuna; hvaða tækifæri felast í tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til borgarinnar byggt á fyrri reynslu Velferðarsviðs af flutningi verkefna frá ríki til borgar.
Hér má sjá dagskrá málþingsins og glærur málflytjenda>>>