Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Staðan í byrjun október.

08.10.2010

Upplestur á frétt 

Miðvikudaginn 6. október var forstöðumannafundur hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík þar sem meðal annars var fjallað um tilfærslu þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík. María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri yfirfærslunnar fór á fundinum yfir stöðu mála. Undirbúningur er í fullum gangi þótt enn hafi ekki verið skrifað undir heildarsamkomulag um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga þar sem markvisst er stefnt að því að þetta náist um áramótin. Því er mikilvægt að halda vel utanum verkefnið og forgangsraða verkefnum í takt við markmið þessa árs en áhersla hefur verið lögð á praktíska þætti svo sem fjármál, mannauðsmál og upplýsingatæknimál og síðast en ekki síst upplýsingamiðlun og samráð. Markmiðið er að notendur viti um áramót hvernig þjónustunni verður fyrirkomið hjá Reykjavíkurborg og hvert þeir eiga að leita, starfsfólk geti fengið greidd laun og vinna við þróun upplýsingatæknikerfa sé hafin þannig að hægt verði að skrá nýjar umsóknir um þjónustu sem fyrst inn í rétt tölvukerfi.

Hér má sjá frétt SSR af fundinum en þar var fjallað um fjölmörg önnur mál >>>

Hér má sjá glærur Maríu Rúnarsdóttur frá fundinum >>>> adobe pdf