Staða starfshópa vegna yfirfærslu málefna fatlaðra
08.10.2010
Upplestur á frétt 
Starfshópar hafa tekið til starfa vegna flutnings á þjónustu við fatlað fólk frá ríki til Reykjavíkurborgar. Vissulega er um þróunarverkefni til nokkurra ára að ræða en nauðsynlegt að hefja undirbúining sem fyrst. Hóparnir vinna með hugmyndir um þróun þjónustu við fatlað fólk og leiðir hvernig megi auka samráð við notendur auk ýmissa hagnýtra mála sem tengjast þessari stóru yfirfærslu.
Hér má sjá alla starfshópana, erindisbréf þeirra og fundargerðir>>>
Nú nýlega hefur starfshópur um upplýsingamiðlun hafið störf en honum er ætlað að gera tillögur um kynningaráætlun vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar sem nær til starfsmanna, notenda og aðstandenda. Við munum frétta meira af þeim síðar.
Tveir starfshópar eru starfandi hvað varðar mannauðsmál, annars vegar starfshópur um fræðslu og móttöku starfsmanna og hinsvegar vinnuhópur um flutning gagna og stoðþjónustu í mannauðsmálum
Hlutverk vinnuhóps um gögn og stoðþjónustu er flutningur starfsmanna Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík til Reykjavíkurborgar. Undirbúa og tryggja að yfirfærsla rafrænna ganga og annarra upplýsinga vegna flutningsins gangi snuðrulaust fyrir sig. Einnig að greina þörf á stoðþjónustu í mannauðsmálum og að koma með tillögur þar um. Hér er að mörgu að huga og hefur hópurinn nú þegar gert samantekt á því hvað hefði betur mátt fara í yfirfærslu málefna geðfatlaðra (maí 2010) og yfirfærslu heimahjúkrunar (1.jan. 2009) sér til hliðsjónar. Hvað varðar flutning rafrænna gagna þá eru í vinnslu drög að áætlun fyrir innleiðingu sjálfsafgreiðslu VinnuStundar. Ákveðið hefur verið að halda kynningar fyrir starfsfólk launadeildar.
Starfshópur um fræðslu og móttöku hefur þann starfa að meta þörf starfsmanna Velferðarsviðs á fræðslu um málaflokk fatlaðra og þeirri starfsemi sem flyst frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra til VEL sem og að gera áætlun um hvernig best sé að taka á móti nýjum starfsmönnum frá SSR. Nú þegar liggja fyrir drög að námskeiðum og markhópum fyrir hvert námskeið sem og drög að móttökuáætlun nýrra starfsmanna.
Svo höfum við starfshóp um nýliðun í sértækri búsetu- og stuðningsþjónustu sem hefur þau verkefni að meta nýliðun í sértækri búsetu- og stuðningsþjónustu við fatlað fólk með hliðsjón af lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Þau hafa lesið og rætt Skýrslu Ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlaða (ágúst 2010). Hópurinn hefur leitað samþykkis framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðva fyrir því að athugað verði hvort einstaklingar í þeirra þjónustu fái alla þá þjónustu sem þau eigi rétt á eða hvort þörf sé á frekari liðveislu. Sömuleiðis hafa þau aflað upplýsinga frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og bíða nú svara þaðan. Ætlunin er að ræða við kennsluráðgjafa um hvort börn séu að fá þá stuðningsþjónustu sem þau eiga rétt á.
Tveir starfshópar vinna að upplýsingatæknimálum.
Fyrst má nefna starfshóp um skráningu einstaklingsmála sem vinnur við að gera tillögur um hverning skráningu einstaklingsmála verði best háttað þegar þjónusta við fatlaða sem nú er veitt af Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík flyst yfir til Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Frá því að þau hittust fyrst þann 30. júní síðastliðinn hafa þau meðal annars farið yfir tölvukerfin Grósku og GoPro Net. Skráð niður atriði sem teljast góð í kerfum SSR og það sem ábótavant telst. Þau hafa fjallað um hvaða tölfræði þurfi að vera til staðar til að fá fram sjálfvirkt úr því kerfi sem notað verður eftir yfirfærsluna, þ.e. kröfur af hálfu ráðuneyta og jöfnunarsjóðs. Hafa einnig farið yfir kerfið Málaskrá, sömuleiðis skráð niður það sem telst gott í kerfum Velferðarsviðs og því sem telst ábótavant. Fulltrúar úr hópnum hafa fundað með Sambandi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna skráningar og upplýsingakerfa með tilliti til yfirfærslunnar. Á næsta fundi munu þau ræða við fulltrúa vinnuhóps um viðtalsbókanakerfi.
Annars vegar er starfshópur um upplýsingatæknimál sem sér um að greina upplýsingatæknibúnað Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og meta kostnað þar um vegna yfirfærslu málefna fatlaðra . Meðal verkefna þeirra er að taka saman lista yfir tölvubúnað, prentara og helsta hugbúnað. Setja saman verkáætlun sem og greina kostnað Velferðarsviðs af upplýsingatæknimálum vegna þjónustu við fatlaða sem nú er veitt af Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra út frá lista fyrir búnað frá SSR. Rétt er að læra af yfirfærslu búsetukjarna geðfatlaðra en þá var helsta vandamálið að fá réttar upplýsingar eftir réttum boðleiðum, hverjir áttu að fá aðgang að tölvum, tölvukerfum og tölvupósti.
Starfshópur um notendasamráð í hverfum Reykjavíkurborgar. Hlutverk hópsins er að efla samráð við notendur um þjónustu fyrir fatlað fólk í Reykjavík og aðgengi að þjónustu í hverfum borgarinnar. Sá hópur fundar tvisvar í mánuði, annarhvor fundur er með starfshópnum sjálfum og hinn með hagsmunaaðilum, notendum og forstöðumönnum stofnana sem veita fötluðu fólki þjónustu auk fulltrúa frá Fötlunarfræði HÍ.
Þeirra megin verkefni eru tvenn:
Að kynna og innleiða aðferðir til að auka notendasamráð um þjónustu við fatlað fólk í hverfum borgarinnar. Þjónustan verður skoðuð með notendum og samstarfsaðilum þjónustumiðstöðva með hliðsjón af áttavitum Reykjavíkurborgar.
Hópurinn skili áfangaskýrslu um starf hópsins og tillögum um hvernig hægt er að þróa notendasamráð áfram í hverfum borgarinnar.
Þau hafa skipt með sér verkum í að greina þjónustu. Þar á meðal leikskólaþjónustu þar sem einnig væri hægt að veita þjónustu heim. Nemendur í grunnskóla, hvernig er hægt að mæta þörfum barna sem eru í grunnskólum og frístundaheimilum með því að byggja upp betra samtal við foreldra. Þjónusta og líf fullorðinna. Hvaða möguleikar bjóðast í samfélaginu, er þjónustan á forsendum þess sem þarf hana?
Að lokum er um að ræða Starfshóp um fjármál sem sér um að meta fjárhagslegt umfang þeirra þátta í yfirfærslunni sem snúa að Reykjavíkurborg og að undirbúa aðlögun og yfirfærslu fjárhagslegra þátta með tilliti til fjárhagslíkans Reykavíkurborgar. Hópurinn hefur þegar sent prufu útgáfu af þjónustuþáttum Velferðarsviðs til fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar til yfirlestrar sömuleiðis eru tilbúin fyrstu drög af áfangaskýrslu. Hafa ákveðið að stofna nýja kostnaðarstaði fyrir alla staði sem koma yfir frá SSR nema þá sem þegar eru í resktri VEL. Einnig hefur hópurinn kynnt sér hvernig Akureyrabær hagar rekstri á heimilissjóðum og einkafjármunum, en þar er áralöng reynsla af þjónustu við fatlað fólk .