Réttindagæsla í nærþjónustu - ráðstefna Þroskahjálpar
14.10.2010
Upplestur á frétt 
Þroskahjálp stóð fyrir ráðstefnu laugardaginn 9. október í tengslum við árlegan fulltrúafund sinn á Hallormsstöðum þar sem fjallað var um réttindagæslu í nærþjónustu. Ekki er það að ástæðulausu að Samtökin völdu þetta umfjöllunarefni nú enda enn ekki ljóst hvernig réttindagæslu við fatlað fólk verður háttað þegar málaflokkurinn hefur flutt til sveitarfélaganna. Á fundinum voru allmargir fulltrúar Þroskahjálpar saman komnir víðsvegar af landinu sem og aðrir ráðstefnugestir. Tveir fulltrúar úr stýrihópi borgarinnar um yfirfærsluna tóku þátt í fundinum, þær Anna Kristinsdóttir, mannrétttindastjóri sem var einnig með framsögu og Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs. Verkefnisstjóri yfirfærslu málefna fatlaðra hjá Reykjavíkurborg var einnig þátttakandi á ráðstefnunni. Reykjavíkurborg hefur lagt áherslu á jafnræði og mannréttindamál og er réttindagæsla í nærþjónustu því mikilvægt umhugsunarefni fyrir borgina í ljósi tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga um áramótin. Á ráðstefnunni kom einnig fram hversu mikilvægt samráð er á þessum breytingatímum, samráð við notendur þjónustunnar, aðstandendur og starfsmenn.
Hér má finna ræðu formanns Þroskahjálpar, glærur frá fyrirlestrum sem og ályktanir fulltrúafundarins þann 9. október 2010. >>> http://throskahjalp.is