Viltu vera skráður á póstlista og fylgjast með fréttum af tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til Reykjavíkurborgar?
14.10.2010
Upplestur á frétt 
Þeir sem hafa áhuga á því að fylgjast með undirbúningsvinnu í Reykjavík vegna yfirfærslunnar eru hvattir til þess að fylgjast með hér á Gáttinni. Reglulega eru sagðar fréttir af starfinu og undirbúningsvinnunni. Einnig er hægt að fylgjast með starfi starfshópa sem eru í fullum gangi þessa dagana.
Stýrihópur yfirfærslunnar í Reykjavík sendi hagsmunasamtökum fatlaðra bréf þann 5. október þar sem sagt var frá undirbúningsvinnunni, upplýsingagáttinni og fyrirhuguðum samráðsfundi þegar heildarsamkomulag um tilfærsluna liggur fyrir. Hagsmunasamtök eru þessa dagana að skrá sig á póstlistann sem lengist með degi hverjum. Sviðsstjórar borgarinnar hafa einnig fengið póst og áhugasömu starfsfólki borgarinnar boðið að skrá sig á póstlistann til þess að fylgjast með.
Vilt þú vera skráð(ur) á póstlistann? Sendu þá póst á netfangið fatladir@reykjavik.is eða notaðu fyrirspurnarformið sem er á forsíðu Gáttarinnar og er að finna hér:
>>> http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-4258/