Upplýsingafundur vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
14.10.2010
Upplestur á frétt 
Miðvikudaginn 13. október stóð Þroskaþjálfafélag Íslands fyrir upplýsingafundi vegna flutnings þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga um næstkomandi áramót. Formanni velferðarráðs, Björku Vilhelmsdóttur var boðið til fundarins ásamt Stellu K. Víðisdóttur, sviðsstjóra Velferðarsviðs, Maríu Rúnarsdóttur, verkefnisstjóra yfirfærslunnar hjá Reykjavíkurborg og Lóu Birnu Birgisdóttir, mannauðsstjóra Velferðarsviðs. Góð þátttaka var á fundinum enda margar spurningar sem brenna á starfsfólki á þessum breytingatímum.
Á fundinum kom fram að þroskaþjálfar munu gegna mikilvægu hlutverki í velferðarþjónustu og sér í lagi í þjónustu við fatlað fólk hjá borginni eftir yfirfærsluna sem fram til þessa. Í drögum að framtíðarsýn Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að nýta hæfni og þekkingu starfsmanna SSR til þess að tryggja samfellu í þjónustu og áframahaldandi þróun sem byggir á reynslu. Reykjavíkurborg fagnar því að fá alla þá þekkingu og reynslu sem þroskaþjálfar hafa til að bera í starfsmannaflóruna sem fyrir er á Velferðarsviði. Það hefur ekki verið stefna Reykjavíkurborgar að eyrnamerkja stöður ákveðnum stéttum heldur er leitast við að hafa blandaða fagþekkingu og ráða þann sem er hæfastur í starfið hverju sinni. Björk Vilhelmsdóttir kynnti vinnu við mótun framtíðarsýnar Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk sem er hafin og innan skamms verður kallað eftir ábendingum frá öllum þeim sem áhuga hafa á málinu og vilja koma að mótun framtíðarsýnar borgarinnar í þjónustu við fatlað fólk.
María gerði grein fyrir fjölda starfshópa sem er að störfum þessa dagana en allt í allt koma nú þegar um 100 manns hjá SSR og Reykjavíkurborg að undirbúningsvinnunni þessa dagana og gert er ráð fyrir að enn fleiri komi að verkefninu þegar farið verður að skoða þjónustuna með tilliti til þess hvernig hún þróast hjá Reykjavíkurborg. Kallað er eftir ábendingum og hugmyndum um það hvar má betur nýta reynslu og þekkingu þroskaþjálfa í þeim verkefnum sem komin eru af stað en erindisbréf starfshópanna er að finna hér >>> starfshópar
Fundurinn var mjög góður og mikilvægt að tala saman og skiptast á hugmyndum. Á fundinum komu einnig fram fjölmargar góðar ábendingar sem verða skoðaðar í undirbúningsvinnunni. Starfsfólk er hvatt til þess að skrá sig á póstlista upplýsingagáttarinnar með því að senda tölvupóst á netfangid: fatladir@reykjavik.is. Á upplýsingagáttinni er fyrirspurna- og ábendingaform þar sem hægt er að senda inn góðar hugmyndir, ábendingar og fyrirspurnir. María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri tekur einnig við öllum góðum hugmyndum, spurningum og ábendingum er varðan undirbúninginn. Netfangið hennar er: maria.runarsdottir@reykjavik.is