Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Vilt þú hafa áhrif á framtíðarsýn borgarinnar í þjónustu við fatlað fólk?

25.10.2010

Upplestur á frétt 

Á fundi borgarstjórnar þann 19. október voru lögð fram til umræðu drög að framtíðarsýn Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk. Á fundi borgarstjórnar var samþykkt einróma að senda drögin til umræðu og athugasemda hjá Öryrkjabandalagi Íslands og aðildarfélagum þess, Þroskahjálp og aðildarfélaga þess, fagsviða Reykjavíkurborgar, starfsmanna Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, Velferðarsviðs og annarra hagsmunaaðila. Meðfylgjandi er bréf frá stýrihópi yfirfærslu málefna fatlaðra í Reykjavík og þau drög að leiðarljósi og framtíðarsýn sem lögð voru fram í borgarstjórnþann 19. október 2010.

Áhugasamir eru hvattir til þess að kynna sér drög að framtíðarsýn borgarinnar í þjónustu við fatlað fólk og senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til Maríu Rúnarsdóttur, verkefnisstjóra yfirfærslu málefna fatlaðra í Reykjavík fyrir 3. nóvember næstkomandi.

Netfang hennar er: maria.runarsdottir@reykjavik.is

Þegar búið er að safna athugasemdum og ábendingum og vinna úr þeim verður framtíðarsýnin með breytingum lögð að nýju fram í borgarstjórn til samþykktar.

Hér má sjá drög að framtíðarsýn, lögð fram í borgarstjórn 19. október 2010 >>>Erindisbréf

Hér má sjá bréf frá stýrihópi yfirfærslunnar >>>Erindisbréf