Námskeiðið "Fötlun: Nýr skilningur og nýjar áherslur"
28.10.2010
Upplestur á frétt 
Það var ísilagðan og kaldan miðvikudagsmorgun þann 26. október sem starfsmenn Velferðarsviðs og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík fjölmenntu á námskeiðið Fötlun: Nýr skilningur og nýjar áherslur sem var haldið í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands.
Rannveig Traustadóttir, prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands fræddi okkur um þróun nýs félagslegs skilnings á fötlun þar sem áhersla er á að skilja þátt umhverfis og menningar í að skapa og viðhalda fötlun. Fötlunarfræði hefur verið einn helsti vettvangur þessarar þróunar ásamt hreyfingu fatlaðs fólks víða um heim. Á námskeiðinu voru þessi nýju sjónarhorn kynnt, fjallað um sögulega þróun hugmynda um fötlun og þá hugmyndafræði sem hefur mótað líf og aðstæður fatlaðs fólks og þjónustu við það. Meðal annars var rætt um hugmyndafræði um eðlilegt líf og samfélagsþátttöku, sem og hugmyndafræði um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð. Að lokum fjallaði Rannveig um tengsl velferðarþjónustu við nýjar áherslur í málefnum fatlaðs fólks og ræddi um nýjar og ört vaxandi mannréttindaáherslur sem hafa áhrif á líf fatlaðs fólks og þá sem veita þeim þjónustu og aðstoð.
Þátttakendum námskeiðsins var skipt í umræðuhópa sem ræddu sín á milli áhrif hugmyndafræði á þjónustu við fatlað fólk og skilning á fötlun. Umræðurnar voru líflegar og tengdust starfi þátttakenda og skoðunum þeirra.
Rannveig sagði yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitafélaga vissulega hafa fallið í skugga kreppunnar því verði að segjast að það sem Reykjavíkurborg sé að gera er glæsilegt og þá sérstaklega með tilliti til Draga að framtíðarsýn Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk. Mörgu megi breyta og þróa áfram. Að sýna fólki kurteisi og virðingu kosti ekki pengina heldur ekki hvernig talað sé um fólk. Ennfremur benti hún á að margir nýir láti sér nú þennan málaflokk varða sem sást í met þátttöku á málþinginu Horft til framtíðar sem haldið var 22. deptember síðastliðinn.
Þakka ykkur kærlega fyrir góðan dag.
Glærur Rannveigar
1. Sögulegt yfirlit 
2. Sögulegt yfirlit. Eðlilegt líf 
3. Nýr skilningur á fötlun 
4. Ný hugmyndafræði. Sjálfstætt líf 
5. Áhrif hugmyndafræði á þjónustu við fatlað fólk 
6. Samantekt. Framtíðarsýn 