28.10.2010
Upplestur á frétt
Gerð hefur verið úttekt á aðgengi að þjónustumiðstöðvum í hverfum Reykjavíkurborgar. Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar lét gera úttektina að beiðni Velferðarsviðs en það var fyrirtækið Aðgengi ehf. sem sá um framkvæmdina. Niðurstöðurnar sýna að aðgengi er í lagi á fjórum þjónustumiðstöðvum af sex þótt bæta þar þurfi nokkur atriði til þess að tryggja aðgengi allra. Brýnt er að tryggja aðgengi að Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness og á þjónustumiðstöð Breiðholts þar sem aðgengi er ekki til fyrirmyndar.
Niðurstöðurnar verða rýndar af þjónustumiðstöðvum og Aðgengisnefnd Reykjavíkurborgar og gerð framkvæmdaáætlun til þess að tryggja aðgengi fatlaðs fólks að þjónustumiðstöðvum í hverfum Reykjavíkur.
Þjónustmiðstöð Vesturbæjar
Þjónustmiðstöð Árbæjar og Grafarholts
Þjónustmiðstöð Breiðholts
Þjónustmiðstöð Grafarvogs og Kjalarness
Þjónustmiðstöð Laugadals og Háaleitis
Þjónustmiðstöð Miðborgar og Hlíða