Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Kynning á yfirfærslunni var haldinn í gær fyrir fatlað fólk og aðstandendur í Reykjavík

09.11.2010

Upplestur á frétt 

FFA - fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur stendur fyrir fundarröð þar sem kynntur er flutningur á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga um næstu áramót. Fundur fyrir íbúa Reykjavíkur og Seltjarnarness var haldinn í gær, 9. nóvember í húsnæði Sjónarhóls í fundarsal á fjórðu hæð.

Mjög góð mæting var á fundinum og greinilegt að mikil þörf er fyrir kynningu á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk, hvað hún felur í sér og kannski ekki síst, hvað hún felur EKKI í sér.

Gerður Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálp sem situr í verkefnisstjórn sem fer með stjórn verkefnisins á landsvísu kynnti stöðuna og hvaða þjónusta það er sem færist til sveitarfélaga um áramótin. Gert er ráð fyrir því að skrifað verði undir heildarsamkomulag um verkefnaflutninginn á næstu vikum og að lagafrumvörp verði lögð fram á alþingi innan skamms.

Gerður lagði áherslu á að það væri mikilvægt fyrir fatlað fólk og aðstandendur að átta sig á því að sú þjónusta sem flyst til Reykjavíkurborgar um áramótin er sú þjónusta sem Svæðisskrifstofan veitir nú, þar meðtalin búsetuþjónusta og dagþjónusta.

Jón Heiðar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri SSR tók því næst til máls. Hann lagði áherslu á að þjónustan heldur áfram óbreytt fyrir þá notendur sem eru í þjónustu á vegum starfseininga SSR. Helstu breytingarnar lúta að því að í stað þess að sækja um þjónustu hjá SSR verður umsóknarferlinu breytt og sótt verður um þjónustu á þjónustumiðstöð hverfisins. Einnig verða breytingar á utanumhaldi samninga, skipta þarf um prókúru og fleiri praktísk mál sem þurfa að vera leyst fyrir áramótin. Markmið SSR er að ljúka endurnýjun allra samninga fyrir áramót vegna ársins 2011.

María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar sem heldur utanum undirbúningsvinnuna kynnti fundarfólk fyrir upplýsingagátt yfirfærslunnar. María kynnti drög að framtíðarsýn í þjónustu við fatlað fólk og sagði markmið Reykjavíkurborgar vera að taka við þjónustunni með þeim hætti að notendur finndu sem minnst fyrir því að breyting væri orðin á þjónustuveitanda. Á næstu árum hefst svo vinnan við að þróa þjónustuna í átt til þeirrar framtíðarsýnar sem borgin setur sér. María upplýsti um forgangsatriði í verkáætlun þessa árs en fjölmargir starfshópar eru að störfum sem vinna að undirbúningnum. Unnið er að undirbúningi kynningaráætlunar og hvernig staðið verði að úthlutun í þjónustuúrræði. Umsóknir eru í smíðum og sagði María að áhersla væri lögð á að halda nýju umsóknareyðublöðum sem líkustum þeim sem SSR er með þótt útlitið og ferlið breytist.

Síðastur tók til máls Snorri Aðalsteinsson, félagsþjónustu Seltjarnarnesbæjar sem kynnti viðræður bæjarfélagsins við Reykjavíkurborg um myndun sameiginlegs þjónustusvæðis.

Eftir kaffihlé voru fyrirspurnir og sköpuðust áhugaverðar umræður um tilflutning þjónustu við fatlað fólk og góðar ábendingar bárust sem hafðar verða til hliðsjónar í undirbúningsvinnunni.

Hér má sjá glærur Jóns Heiðars frá fundinum >>>

Hér koma glærur Gerðar Árnadóttur innan skamms>>>