Sjálfstætt líf á Íslandi
12.11.2010
Upplestur á frétt 
Fimmtudaginn 11.nóvember var haldið námskeið um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) fyrir starfsfólk Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra. Við hittumst sem endranær í Gerðubergi og á móti okkur tóku Freyja Haraldsdóttir, þroskaþjálfi og Vilborg Jóhannsdóttir, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands og tóku þær til við að leiða okkur um sögu og hugmyndafræði um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð.
Freyja hóf daginn á því að kynna upphaf hugmyndafræðarinnar um sjálfstætt líf sem á rætur að rekja til mannréttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum á 4. áratugnum. Þann 1. Desember 1955 nánar til tekið þegar Rose nokkur Parks neitaði að gefa eftir strætó sitt í strætisvagni fyrir hvítum herramanni. Eftir það byrjaði boltinn að rúlla og á næstu áratugum hlóð hann utan á sig þegar fleiri minnihlutahópar hófu að berjast fyrir rétti sínum. Einnig sagði hún okkur frá Ed Roberts (1939-1995) sem var fyrsti verulega fatlaði Bandaríkjamaðurinn sem fékk inngöngu í bandarískan háskóla árið 1962. Þar hóf hann baráttuna fyrir sjálfstæðu lífi og upphafið af notendastýrðri aðstoð við fatlað fólk.
Vilborg leiddi okkur um vegi hugmyndafræðarinnar um sjálfstætt líf sem setur fram skýr gildi um hlutverk þjónustukefisins sem á að kalla eftir hugmyndum frá fötluðu fólki, um óskir þess, kröfur um útfærslu og innihald á öllum stigum stjórnsýlunnar. Svo sjálfstætt líf geti orðið að veruleika þarf virka hlustun, áhuga, virðingu og að unnið sé saman á jafningjagrunni. Jafningjaráðgjöf er einn mikilvægar hornsteina hugmyndafræðinnar og gefur fólki sem er í sambærilegri stöðu kost á því að tengjast sín á milli. Veita hvort öðru stuðning og dýpri skilning. Ennfremur veitir jafningjaráðgjöf fyrirmyndir og lausnir. Þar með styður og hvetur jafningjaráðgjöf gerð sjálfsmats sem er enn einn af hornsteinum hugmyndafræðinnar.Með sjálfsmati er átt við að fatlað fólk meti sjálft hversu mikla aðstoð það þurfi, hvaða aðstoð og hvenær. Sjálfsmatið er grundvallaratriði í undirbúningi að sjálfstæðu lífi því mikilvægt að rétt sé að því staðið. Sömuleiðis gerir hugmyndafræðin þá kröfu að að fagfólk og starfsfólk styðji fatlað fólk í því að gera kröfur í eigin lífi og því mikilvægt að þeir sem ekki geti talað fyrir sig sjálf eins og til dæmis börn hafi ábyrgan og áræðanlegan talsmann.
Helstu hornsteinar hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf eru:
- Húsnæði
- Notendastýrð persónuleg aðstoð
- Samgöngur og hreyfanleiki
- Aðgengi
- Jafningjaráðgjöf og stuðningur
- Aðgengi að upplýsingum um réttingi og möguleika til þjónustu
- Tækjabúnaður sem minnkar þörf fyrir að vera háður öðrum.
- Sjálfsmat
- Jafningjaráðgjöf
- Gæðamál
Freyja útskýrði fyrir okkur tilurð og hlutverk samvinnufyrirtækja líkt og NPA miðstöðin er. Í grófum dráttum er um að ræða vinnuveitanda aðstoðarfólks sem sér meðal annars um þjálfun, verkstýringu og launamál aðstoðarmanna. Samvinnufyrirtæki veitir upplýsingar um réttindi og möguleika fatlaðs fólks, kemur áleiðis upplýsingum til réttra aðila um stöðu beingreiðslna, sinna pólitískri baráttu og efla þekkingu á sjálfstæðu lífi innan kerfis og samfélags.
Þegar líða tók á daginn var farið í stutta hópavinnu þar sem ýmsum hugmyndum og staðreyndum velt fram og tilbaka og vöknuðu upp áhugaverðar spurningar og vangaveltur. Meðal spurninga var þessi: „Hvað með ábyrgð og og skyldur (fatlaðs fólks)“ Freyja var snögg að benda okkur á að til að einstaklingur geti haft ábyrgð og skyldur í samfélaginu þurfi hann að vera fullgildur einstaklingur þess. Þetta snýst þegar öllu er á botninn hvolt um grundvallar mannréttindi.
Glærur frá námskeiðinu
NPA miðstöðin þar sem hægt er að finna upplýsingar um hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og myndbönd sem voru sýnd á námskeiðinu
NPA miðstöðin á Facebook
Freyja er með reglulega pistla á Pressunni og hvetjum við alla til að fylgjast með skrifum hennar þar
Grein Vilborgar Jóhannsdóttur og Freyju Haraldsdóttur um notendastýrða persónulega aðstoð
BA verkefni Freyju Haraldsdóttur sem fjallar m.a. um hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og mannréttindi með tilliti til barna.
Norræn upplýsingasíða um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fólk með fötlun. Þar er að finna viðtöl við notendur sem eru með notendastýrða persónulega aðstoð
Tenglar á samvinnufyrirtæki á Norðurlöndum
Noregur: http://www.uloba.no/
Svíþjóð: http://www.stil.se/
Svíþjóð, sérhæfir sig í að veita fólki með þroskahömlun NPA: http://jag.se/