Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Samantekt á stöðu starfshópa vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar.

18.11.2010

Upplestur á frétt 

Hlutverk starfshóps um upplýsingamiðlun er að koma með tillögur um kynningaráætlun vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar sem nær til starfsmanna, notenda og aðstandenda. Þær ágætu konur sem þennan hóp skipa hafa fundað með Átaki og Þroskahjálp. Eftir stendur undirbúningsvinna fyrir kynningu og lokaskýrslu. Verkskil: Tillögur ásamt kostnaðaráætlun liggi fyrir 15.10.10 en hópurinn fékk frest fram í miðjan nóvember. Starfstími: 20.09.10 til 15.11.10.

Starfshópur um mat á næturþjónustu hefur það hlutverk að skoða og meta umfang næturþjónustu í Reykjavík og gera tillögur um hvernig hún getur verið skipulögð hjá Reykjavíkurborg þegar þjónusta við fatlað fólk hefur verið flutt frá ríki til sveitarfélaga með öryggi notenda og skilvirka nýtingu fjármagns að leiðarljósi. Þeirra lausn var að leggja viðmiðunarlista undir starfsfólk starfstaða með næturþjónustu. Beðið var um mat á viðbragstíma og hvað fælist í starfinu. Vinna við greiningu listanna stendur yfir. Verkskil: Tillögum skilað til ábyrgðarmanns fyrir 15.10.10 en hópurinn fékk frest til nóvemberloka. Starfstími: 07.09.10 til 30.11.10.

Starfshópur um nýliðun hefur þann starfa að meta nýliðun í sértækri búsetu- og stuðningsþjónustu við fatlað fólk með hliðsjón af lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Þau hafa fundað með ýmsum aðilum til að fá sem besta sýn yfir hvað megi betur fara. Hafa nú þegar fundað þrisvar og var næsti fundur þar eftir skipulagður þann 15. október. Verkskil: Skýrsla liggi fyrir 01.11.10. Starfstími: 06.09.10- 20.11.10.

Starfshópur um fræðslu og móttöku starfsmanna. Hópurinn hefur sent frá sér áætlun vegna móttöku starfsmanna Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra til Reykjavíkurborgar. Þeirra hlutverk var að undirbúa starfsmenn Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og starfsmenn Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík fyrir flutning þjónustu við fatlaða til Reykjavíkurborgar. Starfstími: 01.06.10- 30.09.10. Fræðsluáætlun og móttökuáætlun er að finna á upplýsingagáttinni.

Starfshópur um skráningu einstaklingsmála sá um að gera tillögur um hvernig skráningu einstaklingsmála verði best háttað þegar þjónusta við fatlaða sem nú er veitt af Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík hefur verið flutt til Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Tillögur hópsins liggja fyrir í drögum og er áætlað að vinna við þróun upplýsingakerfis hefjist á næstunni. Starfstími: 03.06.10 til 30.10.10, hópurinn fékk framlenginu og eru áætluð skil þann 25. nóvember.

Starfshópur listun upplýsingatæknibúnaðar. Hlutverk hópsins var að greina upplýsingatæknibúnað Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR) og meta kostnað þar um vegna yfirfærslu málefna fatlaðra til Reykjavíkurborgar. Hafa skilað skýrslu. Starfstími: 01.06.10 til 30.06.10

Starfshópur um notendasamráð í hverfum Reykjavíkurborgar hafa það hlutverk að efla samráð við notendur um þjónustu fyrir fatlað fólk í Reykjavík og aðgengi að þjónustu í hverfum borgarinnar. Hópurinn skilaði áfangaskýrslu um starf hópsins 15. október 2010 en tillögum um hvernig hægt er að þróa notendasamráð áfram í hverfum borgarinnar verður skilað í lok árs. Starfstími: 26.07.10 til 31.12.2010.

Starfshópur um fjármál hefur nú nánast lokið störfum eftir að hafa fundað í fimm skipti varðandi mat áfjárhagslegu umfang þeirra þátta í yfirfærslunni sem snúa að Reykjavíkurborg ogundirbúning aðlögunar og yfirfærslu fjárhagslegra þátta með tilliti til fjárhagslíkans Reykavíkurborgar. Verkskil tillagna voru 01.10.10 en hópurinn hefur fengið frest vegna fjárhagsáætlunarvinnu. Starfstími: 25. 08.10 og starfi til 01.12.10.

Tekið hefur til starfs starfshópur um inntöku í dagþjónustu og vinnutengd úrræði fyrir fatlað fólk og er þeirra hlutverk skoða hvernig inntöku í dagþjónustu og önnur vinnutengd úrræði fyrir fatlað fólk í Reykjavík verði best háttað hjá Reykjavíkurborg þegar þjónusta við fatlað fólk hefur verið flutt til sveitarfélaga. Von er á fundargerð annars fundar þeirra. Starfstími: 20.10.10 til ábyrgðarmanns 30.11.10.

Starfshópur um inntöku í stuðningsúrræði fyrir börn og fjölskyldur þeirra hóf störf ekki svo langt fyrir löngu og hafa nú þegar skilað af sér þremur fundargerðum. Hlutverk þeirra er að endurskoða ferli tilvísana og inntöku í úrræði fyrir börn í Reykjavík.Starfstími 15.10.10- 30.11.10.

Að lokum, þá hefur annar öflugur nýr starfshópur tekið til starfa og fjalla þau um inntöku í húsnæðisúrræði fyrir fullorðna Reykvíkinga þau ætla endurskoða inntöku í margvísleg húsnæðisúrræði fyrir fullorðið fólk í Reykjavík.Þau hafa þegar fundað þrisvar sinnum nú síðast á hugarflugsfundi þann 9. nóvember. Starfstími 15.10.10- 30.11.10.