Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Starfsmannamál og yfirfærsla málefna fatlaðra

19.11.2010

Upplestur á frétt 

Starfsmannaskrifstofa Fjármálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitafélaga og Félags-og tryggingamálaráðuneytis stóðu fyrir tveimur kynningarfundum dagana 16. nóvember og 18. nóvember fyrir starfsmenn Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar. Voru þeir haldnir til upplýsingar fyrir starfsfólk SSR á stöðu yfirfærslu mála, réttindi starfsmanna og nýjan vinnuveitanda, Reykjavíkurborg.

Þriðjudagsfundurinn var sá fyrsti í röð kynningarfunda sem verða svo haldnir um land allt.

Dagskráin báða dagana var eftirfarandi:

1. Yfirlit frá félags- og tryggingamálaráðuneyti.Einar Njálsson, félags- og tryggingamálaráðuneyti sem er formaður verkefnisstjórnar útskýrði hverjir koma að vinnunni við yfirfærsluna. Mörg ráðuneyti hafa komið að undirbúningsvinnu sem og gagnaöflun fyrir hið stóra verkefni sem yfirfærslan er.

Einar benti á að þó enn væri nokkuð í land hefðu margir og mikilvægir sigrar unnist:

  • Skrifað var undir viljayfirlýsingu þann 13. mars 2009
  • Náðst hefur samkomulag um fjárhagsramma (11 milljarðar frá ríki til sveitafélaga)
  • Heildarsamkomulag er komið á í öllum megin dráttum en ekki er búið að skrifa undir
  • Frumvarp er tilbúið, ríkisstjórn er búin að fjalla um það sem og þingflokkar. Næsta skrefið er að ráðherra mælir fyrir frumvarpinu á Alþingi

Einnig skýrði Einar frá því að innan samráðshóps um starfsmannamál væri sterkur samhugur um að gæta hagsmuna og réttinda starfsmanna og að áhersla væri á að mannauður og þekking glatist ekki við yfirfærsluna.

Réttindi starfsmanna voru næst á dagskrá. Það sem gerist er tvíþætt:

Starfsmönnum á starfseiningum svæðisskrifstofa um landið allt verður ekki sagt upp heldur flytjast störf þeirra til sveitarfélaga skv. lögum um aðilaskipti nr. 71/2002

  • Svæðisskrifstofur verða lagðar niður og störfin verða ekki lengur til. Starfsmenn munu fá uppsagnarbréf þegar lagabreytingar hafa gengið í gegn. Þeir starfsmenn sem eiga biðlaunarétt fá ekki uppsagnarbréf heldur niðurlagningarbréf.
  • Starfsmenn á starfseiningum halda sínum launum skv. kjarasamningum eftir áramótin. Ekki þarf að gera nýja ráðningarsamninga og uppsafnað orlof verður greitt út um áramótin. Áunninn orlofsréttur flyst til sveitarfélagsins meðstarfsmönnum.

Ákveðið hefur verið að starfsmennsem þetta á við um geti valið um það hvort þeir vilji vera áfram í LSR eða fært sig yfir í lífeyrissjóði sveitarfélaga. Það verður gert eyðublað sem starfsmenn þurfa að fylla út og skila óski þeir þess að vera áfram í LSR.

3. Reykjavíkurborg nýr vinnuveitandi, fulltrúi frá mannauðsskrifstofu Reykjavíkurborgar kynnti Reykjavíkurborg sem vinnustað. Innri vefur Reykjavíkurborgar er hafsjór upplýsinga fyrir starfsmenn borgarinnar þar sem meðal annars má nálgast mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar, Öskju sem er rafrænt innskráningarkerfi starfsmanna, launaseðla, Frívaktina sem er markaðstorg starfsmanna og Hina hliðina þar sem hinir ýmsu starfsmenn borgarinnar eru kynntir. Nýir starfsmenn Reykjavíkurborgar munu fá aðgang að innri vef borgarinnar um leið og þeir hefja störf.

Starfsmenn borgarinnar hafa margvísleg hlunnindi. Almenna reglan er sú að starfsmenn fái þessi hlunnindi eftir 6 mánuði í starfi en þessi regla á ekki við um starfsmenn SSR sem verða starfsmenn borgarinnar í janúar. Starfsmenn munu ganga beint inn í hlunnindapakka sem starfsmenn Reykjavíkurborgar.

Fjórði og síðasti ræðumaður dagsins var Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR en hann var fulltrúi samráðshóps um starfsmannamál og ræddi starfsmenn og réttindi þeirra. Hópurinn hefur starfað síðan á vordögum 2009 enda um stórt og mikið verkefni að ræða. Hann kvað það vera einlægan vilja allra nefndaraðila að sem best takist til við yfirfærsluna með tilliti til starfsmanna og notenda.

Samráðshópurinn hefur farið ofan í saumana á kjarasamningum og ekki er um marktækan mun á launum að ræða. Stóra málið hefur varðað lífeyrissjóðsréttindi starfsmanna ríkis og sveitafélaga. Lífeyrirsjóðsréttindi gerast ekki mikið betri en hjá opinberum starfsmönnum og verður því haldið þannig. Starfsmenn munu eiga þess kost að velja um hvort þeir vilji færa sig úr LSR yfir í lífeyrissjóði sveitarfélaga. Stéttarfélagsaðildin hefur verið til mikillar umræðu. Nú eru drög að samkomulagi á borði ráðherra þess efnis aðþað verði fólki valfrjálst að vera áfram í SFR en nýráðnir starfsmenn fari í starfsmannafélag viðkomandi sveitarfélags. Þetta er þó ekki endanlega frágengið. Bað Þórarinn fólk að athuga að eðli málsins samkvæmt verði margir áfram í sínum fagstéttarfélögum.

Þórarinn benti á að í dag væru svæðisskrifstofur sex en þjónustusvæðin sem eru að taka við þessum verkefnum verða 15 talsins. Því hljóta að skapast störf. Að endingu sagði hann skýrlsu samráðshópsins væntanlega í þessari viku.

Hér eru glærur af fundinum, vakin er sérstök athygli á glærum frá starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins þar sem er hægt er að finna nánari útfærslu á ýmsum atriðum er varða starfsmannamálin.

Á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins er einnig að finna upplýsingar um starfsmannamál undir „spurt og svarað“

Reykjavíkurborg – nýr vinnuveitandi