Heildarsamkomulag um tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga undirritað í dag
23.11.2010
Upplestur á frétt 
Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga var undirritað í dag. Sú þjónustu sem hefur skv. lögum nr. 59/1992 verið veitt á svæðisskrifstofum um landið verður færð til sveitarfélaga frá og með 1. janúar næstkomandi. Þá taka sveitarfélög og skilgreind þjónustusvæði sem hafi að lágmarki 8.000 íbúa við ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun þjónustunnar óháð því hvort hún hefur verið veitt af ríki, sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum eða öðrum aðilum. Frumvarp til laga um tilfærsluna á grundvelli samkomulagsins verður lagt fyrir Alþingi á næstu dögum. Samkomulagið undirrituðu Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fyrir hönd ríkisins og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Karl Björnsson, framkvæmdastjóri sambandsins fyrir hönd sveitarfélaga.
Þjónustan sem sveitarfélög taka við eru sambýli, áfangastaðir, frekari liðveisla við íbúa í þjónustu og íbúðakjörnum og í sjálfstæðri búsetu, hæfingarstöðvar og dagvistarstofnanir, verndaðir vinnustaðir og atvinna með stuðningi, heimili fyrir börn og skammtímavistanir.
Starfsemi sem verður áfram á ábyrgð ríkisins er Hringsjá, Tölvumiðstöð fatlaðra, Múlalundur, Blindravinnustofan og vinnustaðir Öryrkjabandalags Íslands.
Við yfirfærsluna skipta langflestir starfsmenn um vinnuveitanda skv. lögum um aðilaskipti og verða engar breytingar á réttindum þeirra og kjörum. Störf á svæðisskrifstofunum sjálfum verða hins vegar lögð niður. Félagsmenn í SFR geta verið áfram í félaginu kjósi þeir það en nýir starfsmenn munu ganga inn í Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar eða önnur stéttarfélög sem hafa samningsrétt við Reykjavíkurborg.
Þetta er stór áfangi fyrir sveitarfélögin og mikið tækifæri fyrir Reykjavíkurborg til að samþætta og þróa þjónustu við íbúa í hverfum borgarinnar áfram.
Hér má sjá frétt á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga
Hér má sjá frétt á vef félags-og tryggingamálaráðuneytis
Hér er heildarsamkomulagið
Hér er heildarsamkomulagið á vef Sambandsins
Hér er linkur á upplýsingavef Sambands íslenskra sveitarfélaga og viljum við benda sérstaklega á "Spurt og svarað"