Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Kynningar fyrir starfsmenn SSR á þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar

30.11.2010

Upplestur á frétt 

Þessa dagana stendur starfsfólki á starfseiningum SSR sem flytjast til borgarinnar þann 1. janúar til boða að koma á heimsóknir á þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar þar sem Reykjavíkurborg sem vinnustaður er kynnt, starfsemi og stjórnskipulag Velferðarsviðs og viðkomandi þjónustumiðstöð. Framkvæmdastjórar þjónustumiðstöðva hafa haft samband við forstöðumenn hlutaðeigandi starfseininga og boðið þeim á kynningarfundina.

Haldnar hafa verið kynningar á eftirtöldum stöðum:

- Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness (kemur bráðlega)

- Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis >>>Erindisbréf

- Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða og Vesturgarði, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar >>>Erindisbréf

- Þjónustumiðstöð Breiðholts >>>Erindisbréf

Á fundunum hefur Lóa Birna Birgisdóttir, starfsmannastjóri Velferðarsviðs farið yfir kynningu á starfsemi og stjórnskipulagi Velferðarsviðs fyrir hönd sviðsstjóra Velferðarsviðs auk þess sem hún hefur kynnt Reykjavíkurborg sem vinnustað.

Þann 1/12 verður haldin kynning á Þjónustumiðstöð Breiðholts og þann 3/12 verður kynning á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts.

Ekki er komin dagsetning á seinni kynninguna í Miðgarði, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness og fyrir starfsmenn á Gylfaflöt og í Iðjubergi. Stefnt er að þessum kynningum um miðjan desember.