Kynningar fyrir starfsmenn SSR á þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar
30.11.2010
Upplestur á frétt 
Þessa dagana stendur starfsfólki á starfseiningum SSR sem flytjast til borgarinnar þann 1. janúar til boða að koma á heimsóknir á þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar þar sem Reykjavíkurborg sem vinnustaður er kynnt, starfsemi og stjórnskipulag Velferðarsviðs og viðkomandi þjónustumiðstöð. Framkvæmdastjórar þjónustumiðstöðva hafa haft samband við forstöðumenn hlutaðeigandi starfseininga og boðið þeim á kynningarfundina.
Haldnar hafa verið kynningar á eftirtöldum stöðum:
- Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness (kemur bráðlega)
- Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis >>>
- Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða og Vesturgarði, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar >>>
- Þjónustumiðstöð Breiðholts >>>
Á fundunum hefur Lóa Birna Birgisdóttir, starfsmannastjóri Velferðarsviðs farið yfir kynningu á starfsemi og stjórnskipulagi Velferðarsviðs fyrir hönd sviðsstjóra Velferðarsviðs auk þess sem hún hefur kynnt Reykjavíkurborg sem vinnustað.
Þann 1/12 verður haldin kynning á Þjónustumiðstöð Breiðholts og þann 3/12 verður kynning á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts.
Ekki er komin dagsetning á seinni kynninguna í Miðgarði, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness og fyrir starfsmenn á Gylfaflöt og í Iðjubergi. Stefnt er að þessum kynningum um miðjan desember.