Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Tengiliður notenda

14.12.2010

Upplestur á frétt 

Kári Auðar Svansson hefur verið ráðinn til að gegna hlutverki tengiliðar notenda vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar.

Þetta er tilraunaverkefni sem er unnið í samstarfi Velferðarsviðs og Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar sem styrkir verkefnið.

Tengiliður notenda er tengiliður Reykjavíkurborgar við fatlaða notendur þjónustu í Reykjavík og aðstandendur þeirra í aðdraganda tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til Reykjavíkurborgar sem og í tilfærslunni sjálfri. Markmiðið er að efla samráð við notendur þjónustu fyrir fatlað fólk í Reykjavík á þessum breytingatímum og tryggja að rödd þeirra heyrist svo hægt sé að taka mið af þeirra sýn á verkefnið.Tengiliður notenda tekur við erindum sem varða tilfærsluna og undirbúningsvinnuna og upplýsir verkefnisstjóra um ábendingar sem berast.

Kári Auðar hefur aðsetur á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis og er vinnutími hans frá kl. 9:00-13:00.

Netfang Kára er: kari.audar.svansson@reykjavik.is