Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Kynning á hagsmunasamtökum fatlaðs fólks

17.12.2010

Upplestur á frétt 

Fimmtudaginn 9. desember var síðasta fræðsla haustsins vegna yfirfærslu málefna fatlaðra en þá kynntu fulltrúar hagsmunasamtaka starfsemi félaganna og helstu áherslur sínar. Kynningin var að venju haldin í Gerðubergi og er starfsfólki þar færðar þakkir fyrir góðan viðurgjörning á námskeiðum haustsins. Við þökkum einnig öllum þeim sem hafa komið að fræðslunni sem og öllum þátttakendum.

Það var Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar sem reið á vaðið og kynnti Landssamtökin, helstu áherslur og stefnumál samtakanna. Hann benti á að það væri ekki alltaf gott að leita í rann nágranna okkar á norðurlöndum vegna þróunar þjónustunnar því í Noregi hafa menn byggt fjölbýlishús fyrir fatlað fólk og ekki er langt um liðið síðan sérstök reglugerð um byggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk var í gildi á Íslandi. Mörg spennandi verkefni eru í gangi hjá Þroskahjálp í samvinnu við m.a. Fjölmennt og verður áhugavert að fylgjast með þróuninni á næstu mánuðum og afrakstri verkefna.

Glærur Friðriks eru hér >>>Erindisbréf

Síðan komu fulltrúar frá Sjónarhóli, þær Guðríður Hlíf Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri og Inga Birna Sigfúsdóttir, foreldraráðgjafi. Þær gerðu grein fyrir sögu Sjónarhóls og verkefnum þeirra. Þjónustan er fyrir allt landið og er endurgjaldslaus. Sérstaða Sjónarhóls er sú að allar fjölskyldur eru boðnar velkomnar í þjónustuna og er því ekki þörf á formlegum tilvísunum. Sjónarhóll stendur fyrir utan hið formlega þjónustukerfi og því geta allir foreldrar leitað þangað eftir ráðgjöf og stuðningi.

Hér má sjá glærur um Sjónarhól>>>Erindisbréf

Eftir kaffihlé var komið að NPA miðstöðinni og það voru þær Freyja Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri og Embla Ágústsdóttir, varaformaður sem kynntu NPA miðstöðina, helstu áherslur og verkefni sem og framtíðarsýn. NPA miðstöðin var stofnuð síðastliðið sumar og því ekki mikil reynsla komin á starfsemi hennar. Markmiðið er að kynna hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fötluðu fólki og veita jafningjaráðgjöf.

Síðast á dagskrá var Öryrkjabandalag Íslands og voru það þau Guðmundur Magnússon, formaður og Hrefna K. Óskarsdóttir, starfsmaður sem kynntu starfsemi samtakanna, hlutverk og framtíðarsýn .

Hér má sjá glærur ÖBI >>>Erindisbréf