Samráðsfundur vegna yfirfærslunnar þann 28. desember
28.12.2010
Upplestur á frétt 
Í dag var haldinn samráðsfundur vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar þar sem farið var yfir stöðu mála. Framkvæmdastjórar þjónustumiðstöðva, deildarstjórar og tengiliðir mættu á fundinn ásamt starfsmannastjóra Velferðarsviðs, skrifstofustjóra og rekstrarstjóra SSR sem er kominn til starfa á fjármálaskrifstofu Velferðarsviðs.
Verkefnisstjóri yfirfærslunnar, María Rúnarsdóttir, stýrði fundinum og hér má sjá glærur sem hún sýndi á fundinum >>>
Mjög góð mæting var á fundinum en um tuttugu manns voru samankomnir á milli hátíðanna til þess að fá nýjustu upplýsingar um stöðu undirbúnings yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar. Þess ber að geta að starfsmenn Reykjavíkurborgar á fjölmörgum sviðum vinna nú hörðum höndum að undirbúningi yfirfærslunnar og er þeim þakkað fyrir vel unnin störf.
Það sem verður gert fyrir áramót:
- Forstöðumenn fá innkaupakort. Þau eru í vinnslu en ef þetta gengur ekki eftir þurfa forstöðumenn að fá beiðnablokkir. Ákveða þarf með hvaða hætti kortunum verður dreift á starfsstaði.
- Leigubílakort til starfsmanna sem þurfa. Búið er að hafa samband við Hreyfil en kort SSR falla úr gildi 31/12. Frekari upplýsingar um stöðuna verða sendar 29/12.
- Forstöðumenn hafa aðgang að verktaka sem hafa sinnt bráðaviðhaldi. María hringir í viðhaldsaðilla og sendir forstöðumönnum póst.
- Umsóknareyðublöð verða sett á Rafrænu Reykjavík. Rafrænt umsóknareyðublaðaform er í smíðum.
- Birgjar fá bréf frá Reykjavíkurborg með upplýsingum um nýjan viðskiptaaðila. Hér má sjá bréfið >>>
Það sem verður gert í janúar:
- Ný útgáfa af Málaskrá verður gefin út um miðjan janúar og verður þá hægt að skrá inn nýjar umsóknir um þjónustu við fatlað fólk.
- Rafræn gögn um einstaklinga verða flutt frá SSR í Málaskrá í janúar. Þangað til fá skilgreindir aðilar aðgang að málaskráningarkerfi SSR. Upplýsingar berast fyrir 4. janúar með hvaða hætti hægt verður að nálgast einstaklingsupplýsingar.
- Gögn á starfseiningum verða flutt á net borgarinnar, þangað til hafa forstöðumenn aðgengi að gögnum sínum í gegnum net SSR.
- Umsóknarferlar, reglur og verklagsreglur.
- Samráðshópar um þjónustu stofnaðir.
Þar sem hægt verður að skrá umsóknir innan skamms í Málaskrá er því beint til starfsmanna að bíða með að skrá nýjar umsóknir sem kunna að berast á fyrstu dögum janúarmánaðar. Það sama gildir um gögn sem færðust til þjónustumiðstöðva vegna yfirfærslu málefna geðfatlaðra fyrr á árinu.
Umsóknir sem eru virkar hjá SSR færast yfir til Velferðarsviðs og því þurfa umsækjendur ekki að gera nýja umsókn.
Upplýsingamiðlun til notenda:
- SSR hefur sent notendum bréf þar sem tilkynnt er um yfirfærsluna og breytingarnar sem verða um áramótin. Hér má sjá bréfið >>>
- Borði verður settur á forsíðu vefs Reykjavíkurborgar og á hverfisvefi sem vísar á sérstaka upplýsingasíðu um þjónustu við fatlað fólk. Vef SSR verður lokað og fólki beint á upplýsingasíðu Reykjavíkurborgar.
- Velferðarsvið setur tilkynningu í Fréttablaðið um breytingar á þjónustunni þar sem þjónustumiðstöðvar eru kynntar.
- Velferðarsvið sendir bréf til notenda í janúarbyrjun þar sem þeim er kynnt þjónustumiðstöðin í þeirra hverfi.
Önnur gögn sem voru lögð fram á fundinum: