Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Ný þjónusta hjá Reykjavíkurborg

03.01.2011

Upplestur á frétt 

Þjónusta við fatlað fólk sem hefur verið veitt af Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík er nú veitt af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.

Breytingin felur í sér að  frá og með 1. janúar 2011 hefur Velferðarsvið Reykjavíkurborgar ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík.

Breytingin hefur ekki áhrif á daglega þjónustu þeirra notenda sem eru í þjónustu á starfseiningum. Þjónustan verður áfram á sama stað og í höndum sama starfsfólks. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar ber hins vegar ábyrgð á rekstrinum og þjónustunni frá 1. janúar í stað Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík.

Hvar á að sækja um þjónustu?

Sótt er um þjónustu við fatlað fólk á sérstöku umsóknareyðublaði sem er að finna hér. Sótt er um styrki til náms - og/eða tækjakaupa á sérstöku umsóknareyðublaði sem er einnig að finna hér.

Þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar taka á móti umsóknum um þjónustu. Einnig er hægt að koma með umsókn í þjónustuver Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14.  

Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur:

Þjónustumiðstöð Vesturbæjar – Vesturgarður, Hjarðarhaga 45-47, s. 411 1700

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21, s. 411 1600

Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, s. 411 1500

Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Miðgarður, Langarima 21, s. 411 1400

Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12, s. 411 1300

Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, Hraunbæ 115, s. 411 1200