Póstur frá sviðsstjóra til starfsmanna
04.01.2011
Upplestur á frétt 
Kæra samstarfsfólk,
Þann 1. janúar s.l. fluttist þjónusta, sem ríkið hefur hingað til veitt fötluðu fólki skv. lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaðra, til sveitarfélaga, þ.a.l. fluttist ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þeirrar þjónustu sem veitt hefur verið á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík til Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Við þann tilflutning fjölgaði starfsfólki Velferðarsviðs/þjónustumiðstöðva um uþb. 600 manns sem starfa á uþb. fjörutíu starfseiningum sem bættust við þá fjölbreytilegu þjónustu sem þegar er veitt á Velferðarsviði og þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar.
Þetta er mikill áfangi enda ekki á hverjum degi sem heill málaflokkur er fluttur frá ríki til sveitarfélaga. Undirbúningur hefur staðið yfir í langan tíma. Sérstök verkefnisstjórn ríkis og sveitarfélaga hefur unnið að undirbúningi yfirfærslunnar á landsvísu í uþb. tvö ár og hjá Reykjavíkurborg hefur undirbúningurinn staðið yfir í langan tíma eða allt frá árinu 2007 þegar undirbúningur hófst á flutningi á þjónustu við geðfatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar sem lauk 1. maí 2010.
Frá því í mars 2010 hefur Velferðarsvið Reykjavíkurborgar unnið að krafti að undirbúningi á flutningi á málefnum fatlaðra í heild sinni. Ráðinn var til starfa verkefnisstjóri yfirfærslunnar sem hefur skipulagt undirbúninginn og haldið utan um þau fjölmörgu atriði sem svo stórt verkefni hefur í för með sér, auk þess að vera í verkstjórnarhlutverki við undirbúninginn. Borgarráð skipaði svo sérstakan stýrihóp til að hafa yfirumsjón með yfirfærslunni en stýrihópurinn er skipaður bæði kjörnum fulltrúum og embættismönnum borgarinnar.
Margir starfshópar hafa verið að störfum undanfarna mánuði við kortlagningu og undirbúning á verkefnum tengdum yfirfærslunni og fleiri starfshópar verða settir af stað á næstu vikum og mánuðum. Í starfshópum hafa tekið þátt, auk starfsfólks Velferðarsviðs, starfsfólk SSR, fulltrúar notenda og/eða hagsmunasamtaka allt eftir eðli verkefnanna. Alls hafa á annað hundrað manns komið að undirbúningi yfirfærslunnar með störfum sínum í starfshópum eða með öðrum hætti.
Velferðarráð hefur samþykkt metnaðarfulla framtíðarsýn í málefnum fatlaðra sem notuð verður til grundvallar við þróun þjónustunnar næstu mánuði og misseri.
Það er að mörgu að hyggja þegar svo stórt verkefni er flutt milli stjórnsýslustiga og því mikilvægt að við stöndum öll saman að því að leysa jafnóðum þau viðfangsefni sem upp kunna að koma. Markmið Reykjavíkurborgar er að notendur þjónustunnar finni sem minnst fyrir tilfærslunni nema þá með jákvæðum hætti. Starfsfólk sem er í beinum tengslum við notendur þjónustunnar er því lykilaðili í breytingaferlinu. Á fyrstu dögum þessa nýja árs er enn verið að ganga frá ýmsum praktískum atriðum varðandi yfirfærslu þjónustunnar og flutning starfsfólks en strax á næstu vikum hefst frekari vinna við að yfirfæra þekkingu með markvissum hætti og samþætta þjónustu á sviði fötlunar annarri þjónustu á Velferðarsviði auk þess að þróa þjónustuna til framtíðar.
Um leið og ég sendi mínar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár vil ég bjóða nýtt starfsfólk hjartanlega velkomið til starfa á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Ég vil þakka öllu því starfsfólki sem hefur komið að undirbúningsvinnunni með einum eða öðrum hætti og þó sérstaklega Maríu Rúnarsdóttur, verkefnisstjóra yfirfærslunnar.
Kær kveðja,
Stella
Stella K. Víðisdóttir
Sviðsstjóri / Director
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
City of Reykjavík, Department of Welfare
Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík