Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Atvinna með stuðningi fyrir fatlað fólk

14.01.2011

Upplestur á frétt 

Borgarráð samþykkti rétt fyrir jólin að ganga til samstarfs við Vinnumálastofnun um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir fatlað fólk og samstarf varðandi þjónustu og vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnuleitendur sem njóta félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Markmið samkomulagsins er að samþætta þjónustu við fatlað og ófatlað fólk varðandi vinnumarkaðsaðgerðir.

Vinnumálastofnun kemur til með að annast verkefnið Atvinna með stuðningi á árinu 2011. Atvinna með stuðningi er árangursrík leið í atvinnumálum fyrir þá sem þurfa aðstoð við að fá vinnu á almennum vinnumarkaði. Einstaklingum er veitt er víðtæk ráðgjöf við að finna rétta starfið og veita stuðning á nýjum vinnustað.

Á samningstímanum verður unnið að þjónustu- og vinnumarkaðsúrræðum fyrir alla atvinnuleitendur án tillits til þess hvort viðkomandi atvinnuleitendur fái greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði eða frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Unnið verður meðal annars að fjölgun starfa á vegum verkefnisins atvinna með stuðningi á starfsstöðum borgarinnar. Tillögur þar að lútandi eiga liggja fyrir þann 1. maí næstkomandi.

Umsóknir um AMS fara í gegnum AMS og þar fást allar upplýsingar um úrræðið.  Símanúmerið þar er 533 -1370.