Framtíðarsýn í þjónustu við fatlað fólk
19.01.2011
Upplestur á frétt 
Borgarstjórn samþykkti einróma á fundi sínum þann 18. janúar framtíðarsýn í þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík og bauð um leið fatlaða borgarbúa velkomna í þjónustu borgarinnar.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var hafður að leiðarljósi við gerð framtíðarsýnar borgarinnar. Í því felst viðurkenning á sjálfstæðu lífi á eigin forsendum, jöfn tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, réttur til aðstoðar við að lifa innhaldsríku lífi og viðurkenning á fjölbreytileika mannlífsins og mannréttindum allra. Í október á síðasta ári ákvað borgarstjórn að senda framtíðarsýnina í drögum á öll aðildarfélög heildarsamtaka fatlaðs fólks auk þess sem hún var í opinni rýni á upplýsingagátt Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um yfirfærsluna.
Framtíðarsýnin var unnin í samstarfi við ÖBÍ, Þroskahjálp o.fl. hagsmunaðila.
Framtíðarsýn Reykjavíkurborgar
- Margbreytilegum þörfum borgarbúa verði mætt með sveigjanlegri og einstaklingsmiðaðri þjónustu sem veitt er af ábyrgð, virðingu og fagmennsku.
- Aðgengi að þjónustu verði tryggt í nærumhverfi borgarbúa.
- Jafnræði í þjónustu verði tryggt.
- Víðtækt samráð verði haft við notendur, hagsmunasamtök, starfsfólk og háskólasamfélagið um þróun þjónustunnar.
- Borgarbúar sem þurfa aðstoð í daglegu lífi hafi val um hvernig aðstoðinni við þá er háttað. Unnið verði að þróun notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.