Samráðsfundur með þjónustustjórum og þjónustufulltrúum
19.01.2011
Upplestur á frétt 
Miðvikudaginn 19. janúar hélt María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri, samráðsfund með þjónustustjórum þjónustumiðstöðva og þjónustufulltrúum. María fór yfir stöðuna og lagði áherslu á að verið er að flytja heilan málaflokk. Undirbúningur hefur staðið yfir síðastliðna mánuði sem starfsmenn á báðum stöðum, Velferðarsviði og SSR, hafa tekið þátt í honum. Segja má að nú standi yfir flutningur á búslóðinni því ekki eru öll gögn komin yfir til þjónustumiðstöðvanna og Velferðarsviðs. Gert er ráð fyrir því að í byrjun febrúar verði flutningarnir að mestu yfirstaðnir og þá skapist svigrúm til þess að skoða ýmsa þætti varðandi þróun þjónustunnar.
Hér eru glærur Maríu frá fundinum >>>