Samvinna Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar vegna þjónustu við fatlað fólk
20.01.2011
Upplestur á frétt 
Reykjavíkurborg og Seltjarnarnesbær hafa gert með sér samning um að mynda sameiginlegt þjónustusvæði um þjónustu við fatlað fólk. Í heildarsamkomulagi vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga er það skilyrði að hvert þjónustusvæði hafi a.m.k. 8000 íbúa.Í ljósi þessa hafa sveitarfélögin ákveðið að sameinast um þjónustuna við fatlað fólk.
Samvinna á þjónustusvæðinu tekur fyrst og fremst til þjónustu við fatlað fólk á Seltjarnarnesi og í vesturbæ Reykjavíkur þ.e. starfssvæðis Vesturgarðs, þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar.
Markmið samningsins er að tryggja sem best þjónustu við fatlað fólk á þjónustusvæðinu og skilvirka nýtingu þess fjármagns sem veitt er til þjónustunnar en framkvæmd hans er í höndum Reykjavíkurborgar.Fatlaðir íbúar Seltjarnarness sækja almenna ráðgjöf og leggja inn umsóknir um þjónustu hjá sinni félagsþjónustu á Seltjarnarnesi, en fá sérhæfða ráðgjöf og þjónustu í Reykjavík.Seltjarnarnesbær sér um að tengja notendur sem þurfa sérhæfða þjónustu við Vesturgarð.
Sömu viðmið um þjónustustig gilda á þjónustusvæðinu og þjónusta verður veitt á jafnræðisgrundvelli með hliðsjón af þjónustuþörf hverju sinni.