Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Samráðsfundur 27.janúar 2011

28.01.2011

Upplestur á frétt 

Samráðsfundur vegna yfirfærslu málefna fatlaðra

Fimmtudaginn 27. janúar var haldinn samráðsfundur vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar með framkvæmdastjórum þjónustumiðstöðva, deildarstjórum og rekstrarstjórum

María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri fór yfir stöðu mála og helstu spurningar sem hafa vaknað síðastliðnar vikur. Glærur Maríu má sjá hér >>> Erindisbréf

María lagði áherslu á að verið sé að flytja heilan málaflokk og janúarmánuður fari í að koma upplýsingum yfir til Velferðarsviðs frá SSR. Öllum spurningum er ekki svarað og við verðum öll að leggjast á eitt með að vinna verkefnin sem tengjast yfirfærslunni jöfnum höndum og gera okkur grein fyrir að verkefnið er stórt og tekur tíma. María tekur fúslega við öllum fyrirspurnum sem upp kunna að koma og leitar svara við þeim eftir því sem hægt er hverju sinni.

 

Um næstu mánaðarmót eru ákveðin kaflaskil í verkefninu en þá greiðir Velferðarsvið laun til allra starfsmanna, fyrstu greiðslur vegna samninga við stuðningsforeldra og vegna þjónustusamninga verða greiddar auk þess sem Reykjavíkurborg innheimtir í fyrsta skipti leigu í húsnæðisúrræðum fatlaðs fólks.

Fundarmenn bentu á mikilvægi þess að skilgreina aðgang að gögnum á starfseiningum með UTM og er brýnt að hver þjónustumiðstöð ákveði hvernig skipulagið verði. Umræður sköpuðust um hvernig yfirfæra eigi þekkingu á milli þjónustumiðstöðva þar sem ekki er alls staðar þekking til staðar auk þess sem álagið vegna fjölda verkefna í tengslum við yfirfærsluna er mikið á sumum þjónustumiðstöðvum. Einnig var bent á að stundum koma upp mjög flókin og einstök mál og þá er brýnt að boðleiðir séu skýrar. Umræður voru um hvort stofna skuli bráðateymi þvert á borgina sem getur tekið fjárhagslegar og faglegar ákvarðanir á skjótan hátt í tengslum við flókin og viðkvæm mál sem þola ekki bið. Einnig var bent á mikilvægi þess að verklagsreglur liggi fyrir sem fyrst.

Næsti fundur verður haldinn um miðjan febrúar.